Hafnar því að nokkuð saknæmt sé í greininni um MAST Lovísa Arnardóttir og Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifa 28. ágúst 2024 17:44 Ester segir enga starfsmenn hafa verið nafngreinda í grein sinni. Aðsend og Vísir/Vilhelm Ester Hilmarsdóttir hafnar því alfarið að nokkuð saknæmt sé að finna í skrifum hennar um „glyðrugang eftirlitsstofnana“ en forstjóri Matvælastofnunar og tveir starfsmenn hennar hafa kært ummælin til Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra. Greint var frá því fyrr í dag.
Í yfirlýsingu frá Ester til fréttastofu vegna málsins segir hún að henni hafi ekki enn borist formleg kæra vegna málsins. Hún ítrekar að í grein hennar hafi enginn starfsmaður stofnunarinnar verið nafngreindur. Greinina skrifaði Ester þann 16. júlí á þessu ári í tilefni af því að Matvælastofnun hafði veitt Arnarlaxi ehf. rekstrarleyfi á nokkrum stöðum í Ísafjarðardjúpi, sem hafi verið í trássi við mat Samgöngustofu sem hafi metið sem svo að óheimilt væri að veita leyfi á hluta umrædds svæðis. „MAST er fulltrúi stjórnvalda við útgáfu leyfa og eftirlits með mjög skaðlegum og umdeildum iðnaði sem líklega hefur nú þegar valdið óafturkræfum skaða á íslenskri náttúru og lífríki. Grein mín var sett fram til að vekja athygli á þeim verðmætum sem felst í náttúru Íslands, og því tjóni sem getur hlotist ef fjárhagslegir stundarhagsmunir gagni framar því að halda uppi vörnum fyrir náttúruna. Slík skilaboð eru innlegg í mikilvæga þjóðfélagsumræðu og á fyllilega rétt á sér,“ segir Ester í yfirlýsingu sinni. Gildisdómur um störf MAST Hún segir að í greininni sé að finna ákveðinn gildisdóm um hvernig starfsfólk MAST hafi kosið að haga sínum störfum. Hún segir myndlíkingu sína um „skrjáfið í seðlunum“ ekki úr lausu lofti gripna. „Aðeins fáein ár eru liðin frá því fjölmiðlar sögðu frá því að dýralæknir fisksjúkdóma hjá MAST stundaði samhliða verkum sínum fyrir stofnunina að selja í sínum persónulega rekstri bóluefni fyrir eldislaxa til sjókvíaeldisfyrirtækjanna sem hann hafði aðkomu að fyrir hönd stofnunarinnar. Sannanlega stungu þá fyrirtækin í vasa hans. Fréttin batt enda á þessi einkaviðskipti starfsmannsins, en það segir ákveðna sögu um menninguna á MAST að hann hélt þar stöðu sinni,“ segir Ester í yfirlýsingu sinni. Þar spyr hún einnig að því af hverju MAST fari ekki að lögum og segir það hlutverk almennings að hafa eftirlit með stofnunum og starfsfólki þeirra. Full ástæða til að fylgjast með starfsfólki „Eins og áður hefur verið bent á hafa stofnanir ekki sjálfstæðan vilja, á bak við hverja stofnun er starfsfólk sem stýrir stofnuninni og hlýtur það að þurfa að bera einhverja ábyrgð á ákvarðanatöku. Það er nauðsynlegt að stugga við stjórnvöldum og stofnunum, þegar svo ber við, svo að lýðræðið fái að virka eins og það á að gera. Það er hlutverk okkar allra að vera vakandi og hnippa í stjórnvöld og eftirlitsstofnanir til að sinna sínu hlutverki þrátt fyrir þöggunartilburði,“ segir Ester og að eftirlitsstofnanir séu ekki yfir gagnrýni hafnar. „MAST hefur ítrekað verið í fjölmiðlum þar sem gagnrýni hefur komið fram á vinnubrögð þeirra. Full ástæða er til að velta fyrir sér hvernig starfsfólk MAST kýs að fylgja eftir lögum um fiskeldi og nýta þær skýru heimildir sem þar eru til þess að láta fyrirtækin sæta ábyrgð og taka afleiðingum af því hvernig rekstri þeirra er háttað. Lögin eru sett til að „koma í veg fyrir hugsanleg spjöll á villtum nytjastofnum og lífríki þeirra og tryggja hagsmuni þeirra sem nýta slíka stofna.““ Ester bendir að lokum á að í gær hafi Vísir fjallað um að MAST hefði fundið sjö frávik, þar af fimm alvarleg, í reglubundinni úttekt stofnunarinnar á starfstöð fiskeldisfyrirtækisins Arctic Sea Farm hf. í Dýrafirði í vor. „Þetta er langt í frá í fyrsta skipti sem alvarleg frávik koma fram við eftirlit MAST og Umhverfisstofnunar með sjókvíaeldisfyrirtækjunum. Ekkert þeirra hefur þó enn verið svipt starfs- eða rekstrarleyfum,“ segir Ester og að í lögum sé skýr heimild til að gera það. „Eldislaxar hafa sloppið ítrekað úr sjókvíum við landið. Það er óumdeild staðreynd. Fróðlegt væri að heyra skýringar stjórnenda MAST á því af hverju stofnunin hefur ekki nýtt heimildir sínar til að stöðva þessa brotastarfsemi,“ segir hún að lokum.
Lögreglumál Stjórnsýsla Mest lesið „Stundin sem við höfum óttast er runnin upp“ Erlent Hermenn bauluðu á Biden, Newsom og blaðamenn Erlent Vinnuslys við Suðurlandsbraut Innlent Halla flytur hátíðarávarpið í stað Kristrúnar Innlent Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir Innlent Undirbúa flutning þúsunda til Guantánamo Erlent Þrjú ár fyrir að svíkja út 156 milljónir og leggja inn á fjölskylduna Innlent Sigurður Fannar játar að hafa banað dóttur sinni Innlent Dagur gáttaður á Viðskiptaráði: „Leigufélögin eru ekki andskotinn sjálfur“ Innlent Aðalmeðferð hafin í máli Sigurðar Fannars Innlent Fleiri fréttir Fastir á Keflavíkurflugvelli í þrjá daga án útskýringa Hvalurinn kominn út á haf Fastir í flugstöðinni í fjóra daga og Trump-Tesla í Keflavík Sigurður Fannar játar að hafa banað dóttur sinni Bein útsending: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Máttu ekki tjalda á Arnarhóli Sterametið mölbrotið í Leifsstöð: Lögðu hald á um 9 lítra af sterum og 44 þúsund töflur Hæstiréttur staðfestir nauðgunardóm Najeb Kolbrún svarar í engu kröfu um að hún skuldi afsökunarbeiðni Vinnuslys við Suðurlandsbraut Fótboltagláp, ráfandi djammarar og nú fljúgandi nefhjól Stendur í stafni fyrir samevrópska nefnd WHO um lýðheilsu Dagur gáttaður á Viðskiptaráði: „Leigufélögin eru ekki andskotinn sjálfur“ Stórauka þjónustu Strætó í lok sumars Bein útsending: Byggjum til framtíðar – með gæði, heilnæmi og sjálfbærni að leiðarljósi Miklar breytingar hjá Play og nefhjól í lausu lofti Háhyrningurinn synti rakleiðis í strand Halla flytur hátíðarávarpið í stað Kristrúnar Olíudreifing sýknuð af tug milljóna króna bótakröfu Costco Segir Ísland stunda hvítþvott í svörum til SÞ Aðalmeðferð hafin í máli Sigurðar Fannars Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir Neitaði að borga fyrir leigubílinn og braut rúðu í lögreglubíl Hnattræn hlýnun gerði hitabylgjuna í maí hlýrri og mun líklegri en ella Háhyrning rak á land í Grafarvogi Reisa tuttugu bekki til minningar um Bryndísi Klöru Tilfinningaþrungin ræða á þingi SÞ: „Stolt, fötluð, og óendanlega þakklát“ „Hjólið fellur á flugi, auðvitað er það alvarlegt“ Þrjú ár fyrir að svíkja út 156 milljónir og leggja inn á fjölskylduna Endósamtökin lýsa yfir þungum áhyggjum Sjá meira