Agnes og Eva atkvæðamestar í tapi fyrir Tékkum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júlí 2024 12:23 Eva Wium Elíasdóttir var með 16 stig, 6 fráköst, 3 stoðsendingar og 2 stolna bolta í leiknum í dag. fiba.basketball Íslenska tuttugu ára landslið kvenna í körfubolta tapaði með sex stigum fyrir Tékkum, 67-61, í baráttunni um sæti í undanúrslitum í b-deild Evrópumótsins.
Íslensku stelpurnar eiga þar með ekki lengur möguleika á sæti í undanúrslitum en mæta Írum í lokaleik milliriðilsins á morgun. Þær geta enn náð fimmta sætinu á mótinu. Tékkar unnu leikinn 67-61 eftir að hafa verið níu stigum yfir í hálfleik, 36-27. Íslenska liðið var 13-7 yfir í byrjun leiks en átti mjög erfiðan kafla í seinni hluta fyrsta leikhlutans sem Tékkarnir unnu með þrettán stigum, 17-4. Eftir það voru íslensku stelpurnar alltaf að elta. Íslensku stelpurnar unnu seinni hálfleikinn með þremur stigum en það var bara ekki nóg. Keflvíkingurinn Agnes María Svansdóttir var stigahæst með 19 stig en Þórsarinn Eva Wium Elíasdóttir skoraði 16 stig. Þær voru langatkvæðamestar í íslenska liðinu því þær voru einnig efstar í stoðsendingum með þrjár hvor. Anna Lára Vignisdóttir (Keflavík) skoraði átta stig og Emma Hrönn Hákonardóttir (Þór Þorlákshöfn) var með 5 stig og 3 stolna bolta. Kristrún Ríkey Ólafsdóttir var með 5 stig og 6 fráköst. Jana Falsdóttir (spilar með Njarðvík) var með 5 stig, 7 fráköst og 3 stoðsendingar og Hekla Eik Nökkvadóttir (Grindavík) gaf einnig 3 stoðsendingar. Jana var frákastahæst í íslenska liðinu en þær Kristrún Ríkey, Eva Wium og Sara Líf Boama tóku einu frákasti minna. Íslenska liðið vann líka þær 27 mínútur sem Jana spilaði með þrettán stigum og tapaði því með nítján stigum þegar hún sat á bekknum.
Landslið kvenna í körfubolta Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Fótbolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn Fleiri fréttir Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sjá meira