Hörður Ellert dæmdur fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur sinni Árni Sæberg skrifar 28. júní 2024 08:43 Landsréttur kvað upp dóm í málinu í gær. Vísir/Vilhelm Hörður Ellert Ólafsson, frumkvöðull og ljósmyndari, hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur þáverandi sambýliskonu sinnar. Þegar stúlkan var níu til tólf ára braut hann margítrekað gegn henni, meðal annars með því að láta hana veita honum munnmök. Hann fékk síma stúlkunnar afhentan hjá lögreglu á meðan málið var til rannsóknar og fékk nálgunarbann á föður hennar um tíma.
Þetta segir í dómi Landsréttar, sem kveðinn var upp í gær. Hörður Ellert er ekki nafngreindur í dóminum en samkvæmt heimildum Vísis er um hann að ræða. DV greindi fyrst frá. Í dóminum segir að Hörður Ellert, sem hefur í gegnum tíðina komið að stofnun og rekstri þónokkurra fyrirtækja, þar á meðal Inhouse, Nostra veitingahúss, Mótherja og Syndis, verið ákærður fyrir að hafa á árunum 2016 til 2019 í ótilgreindan fjölda skipta með ólögmætri nauðung haft við stúlkuna önnur kynferðismök en samræði með því að setja fingur inn í leggöng hennar, getnaðarlim sinn á milli læra hennar og viðhafa samfarahreyfingar, sleikja kynfæri hennar, nudda kynfæri hennar og fróa sér á meðan og í eitt skipti látið hana veita sér munnmök. Þá hafi hann sýnt stúlkunni klámmyndir og tekið myndir af kynfærum hennar í eitt skipti. Sneri við dómi héraðsdóms Hörður Ellert var sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins og einkaréttarkröfu stúlkunnar var vísað frá með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í júní í fyrra. Þá taldi héraðsdómur að framburður stúlkunnar, sem þó hefði verið trúverðugur, hefði ekki þá stoð að nægði til að sakfella Hörð Ellert gegn eindreginni neitun hans. Í dómi Landsréttar kemur fram að framburður stúlkunnar hefði frá upphafi verið skýr, stöðugur og án mótsagna. Frásögn hennar hefði verið einlæg, ýkjulaus og sannfærandi og yrði ekki séð að framburður hennar væri í ósamræmi við framburð annarra vitna eða gögn málsins. Framburður Harðar Ellerts fengi hins vegar takmarkaða stoð í framburðum vitna og gögnum málsins sem rýrði trúverðugleika hans og sönnunargildi. Trúverðugur framburður stúlkunnar hafi verið lagður til grundvallar við úrlausn málsins þrátt fyrir eindregna neitun Harðar Ellerts. Hann hafi því verið sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum var gefin að sök í ákæru. Þegar gagnrýnd málsmeðferð Herði til refsimildunar Í dóminum segir að við ákvörðun refsingar Harðar Ellerts hafi verið litið til þess að hann hefði ekki áður hlotið refsidóm og dráttur hefði orðið á málinu, sem honum yrði ekki kennt um, honum til refsimildunar. Fréttastofa ræddi við Helgu Baldvins Bjargardóttur, réttargæslumann stúlkunnar, í janúar árið 2019. Hún gagnrýndi vinnubrögð lögreglu og ákæruvaldsins harðlega og sagði ekki boðlegt að réttarkerfið gæti ekki unnið úr málum án þess að valda brotaþolum skaða. Stúlkan hefði þurft að bíða í nærri tvö ár án ákæru og lögreglan hafi á þeim tíma afhent Herði Ellerti síma stúlkunnar. Í dóminum segir að hins vegar hafi verið litið til þess að Hörður Ellert hefði nýtt sér yfirburðastöðu sína gagnvart stúlkunni, sem var á barnsaldri, og misnotað sem stjúpfaðir hennar traust stúlkunnar og trúnað um þriggja ára skeið. Þessi háttsemi Harðar Ellerts bæri vott um styrkan og einbeittan ásetning hans. Þá bæru gögnmálsins með sér að háttsemi hans hefði haft alvarlegar afleiðingar fyrir heilsu stúlkunnar. Samkvæmt þessu væri refsing Harðar Ellerts hæfilega ákveðin þriggja og hálfs árs óskilorðsbundin fangelsisvist. Þá var dómur héraðsdóms ómerktur hvað einkaréttarkröfu stúlkunnar varðar og vísað heim í hérað til efnismeðferðar. Loks var Hörður Ellert dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar í héraði og fyrir Landsrétti, 5,3 milljónir króna. Fékk nálgunarbann á föður og bróður stúlkunnar Í janúar árið 2023 staðfesti Landsréttur úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um nálgunarbann á hendur manni sem ítrekað hafði haft uppi grófar hótanir, þar á meðal líflátshótanir, í garð annars manns og fjölskyldu hans. Samkvæmt heimildum Vísis er sá sem hótaði faðir stúlkunnar og sá sem fyrir hótunum varð Hörður Ellert. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði annan mann, eldri bróður stúlkunnar, í nálgunarbann vegna málsins. Hann var grunaður um að hafa ráðist á Hörð Ellert í október árið 2022. Landsréttur felldi þann úrskurð hins vegar úr gildi.
Kynferðisofbeldi Dómsmál Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Sjá meira