Tveir handteknir í tveimur aðskildum málum vegna ofbeldis í heimahúsi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 23. maí 2024 06:27 Lögregla hafði í nógu að snúast á vaktinni í gærkvöldi og nótt. Vísir/Vilhelm Tveir voru handteknir í tveimur aðskildum málum í gærkvöldi eða nótt vegna ofbeldis í heimahúsi. Annar einstaklingurinn reyndist mjög ölvaður en hinn reyndi að slá til lögreglumanns.
Frá þessu er greint í yfirliti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu yfir verkefni næturinnar. Lögreglu barst einnig tilkynning um innbrot og var grunaður handtekinn skammt frá vettvangi. Öryggisverðir höfðu fylgst með honum en hann virtist mjög ölvaður og var að reyna að komast inn í bifreiðar. Þegar betur var að gáð reyndist um að ræða mann sem lögregla hafði haft afskipti af fyrr um nóttina sökum ölvunar en þegar komið var í fangageymslur varð hann mjög ósáttur, hótaði lögreglumanni og reyndi að sparka í annan. Lögreglu barst einnig tilkynning um þjófnað úr verslun þar sem þrír voru að verki og þá var einn handtekinn í borginni grunaður um sölu fíkniefna. Sá var látinn laus að lokinni skýrslutöku. Í yfirliti lögreglu segir einnig frá því að tilkynning hafi borist í gær um tvo einstaklinga á skemmtistað en annar þeirra virtist vera með skotvopn í buxunum. Mennirnir voru handteknir af vopnuðum lögreglumönnum og sérsveit skömmu síðar, þar sem þeir voru komnir í bifreið. Í ljós kom að um eftirlíkingu var að ræða, ekki eiginlegt skotvopn. Viðkomandi voru með fíkniefni á sér og er annar þeirra grunaður um akstur undir áhrifum.
Lögreglumál Mest lesið Hinir treystu sér ekki en Íslendingarnir flugu Innlent Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Innlent Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Innlent Lést í sprengingunni Innlent Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu Erlent Sögðu líf Breta í hættu og skutu að breskri herstöð Erlent Handtekinn vegna stunguárásar í miðbænum Innlent Hringveginum lokað, snjóflóð og flughálka Innlent Grunur um að íkveikja hafi valdið sinubruna Innlent „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Innlent Fleiri fréttir Deila um menningarhús skekur Skagafjörð Hringveginum lokað, snjóflóð og flughálka Nýsköpun, kjarasamningar og afnám áminningarskyldu Fáskrúðsfjarðargöngum lokað vegna umferðaróhapps Hinir treystu sér ekki en Íslendingarnir flugu Handtekinn vegna stunguárásar í miðbænum Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Grunur um að íkveikja hafi valdið sinubruna Framboðslisti Vinstrisins í Reykjavík kynntur Boða lokanir á hringveginum vegna veðurs Einn handtekinn til viðbótar í tengslum við hópárásina Atvinnurekendur farnir að nota gervigreind til að sía umsóknarflóðið Lögregla metur ógn af erlendum áhrifum á ESB-atkvæðagreiðslu Guðrún um Þorgerði: „Yfirlæti hefur ekki reynst henni góður ráðgjafi“ Veittu ferðamönnum í vanda aðstoð við Héðinsfjarðargöng Rannsókn á banaslysinu í Fóðurblöndunni gæti tekið vikur og jafnvel mánuði Dapurlegt að fylgjast með hægriflokkum sem sameinast á jaðrinum Slysið í Fóðurblöndunni, möguleg afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslu og enn meira óveður Lokað fyrir umferð um Öxnadalsheiði Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Fríhöfnin gjörsamlega galtóm „Auðvitað mikið áfall“ Sprengingin hjá Fóðurblöndunni og áhyggjur af stríðinu í Íran Fimm bíla árekstur á Sæbraut Gert að rannsaka tvö mál betur en gefa ekkert upp Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Lést í sprengingunni Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Sjá meira