Innlent

Séra Guð­rún kjörin biskup Ís­lands

Bjarki Sigurðsson skrifar
Guðrún Karls Helgudóttir
Guðrún Karls Helgudóttir Vísir/Einar

Séra Guðrún Karls Helgudóttir var í dag kjörin biskup Íslands. Kosið var milli hennar og Guðmundar Karls Brynjarssonar. Guðrún tekur við af Agnesi M. Sigurðardóttur sem hefur gegnt embættinu síðan árið 2012. 

Þetta var tilkynnt á vef Kirkjunnar í dag. Þar segir að Guðrún hafi fengið 52,19 prósent atkvæða og Guðmundur hlaut 46,97 prósent atkvæða. Kjörsókn var 88,85 prósent.

Sr. Guðrún verður vígð í Hallgrímskirkju sunnudaginn 1. september.

Um var að ræða seinni umferð biskupskjörs en í fyrri hluta kjörsins var valið milli þeirra tveggja, auk Sr. Elínborgar Sturludóttur. Guðrún hlaut þar 45,97 prósent atkvæða, Guðmundur 28,11 prósent og Elínborg 25,48 prósent. Enginn hlaut meira en helming atkvæða og því var kosið á ný. 

Á kjörskrá voru 2.282 einstaklingar, þar af 167 prestar og djáknar og 2.115 leikmenn. Kosningarétt áttu aðal- og varamenn í sóknarnefndum og allt að sjö kjörfulltrúar úr hverju prestakalli, valdir af sóknarnefnd eða sóknarnefndum. Þá áttu einnig kosningarétt aðrir leikmenn sem eiga sæti á kirkjuþingi. Í tilnefningarferlinu hlaut Guðrún 65 tilnefningar, Guðmundur Karl 60 og Elínborg 52.

Guðrún var stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 1992 og lauk B.A. í guðfræði frá Háskóla Íslands haustið 1998 og cand. theol. frá sama skóla árið 2000. Guðrún hafði umsjón með barnastarfi við Árbæjarkirkju og var æskulýðsfulltrúi við Akraneskirkju og Grafarvogskirkju 1999-2000.

Auk þess sinnti hún ýmsum störfum í kirkjum á höfuðborgarsvæðinu með námi svo sem í Hjallakirkju og Seltjarnarneskirkju og sá um leikjanámskeið í Reykjavíkurprófastsdæmum og hafði umsjón með fermingarbarnanámskeiðum í Skálholti og Gautaborg.

Guðrún tók starfsnám í Gautaborgarstifti árin 2001-2003. Hún var meðferðarfulltrúi í kvennaathvarfi í Gautaborg 2000-2001 og æskulýðsfulltrúi í Lunby söfnuði í Gautaborg. Hún vígðist þann 11. janúar árið 2011 í Dómkirkjunni í Gautaborg og þjónaði í Näsets söfnuði 2004 – 2005 og í Lerums söfnuði árin 2005-2008.

Hún varð prestur í Grafarvogssöfnuði árið 2008 og hefur þjónað sem sóknarprestur í sama söfnuði frá árinu 2016. Sr. Guðrún lauk framhaldsnámi í prédikunarfræðum frá The Lutheran School of Chicago árið 2016 og sat á kirkjuþingi í tvö kjörtímabil frá árinu 2014-2022. 

Eiginmaður sr. Guðrúnar er Einar Örn Sveinbjörnsson og eiga þau tvær dætur og tvær dótturdætur.


Tengdar fréttir

Kjósa þarf aftur til biskups

Kjósa þarf aftur á milli þeirra Guðrúnar Karls Helgudóttur og Guðmundar Karls Brynjarssonar vegna þess að ekki fékkst meirihluti í atkvæðagreiðslu sem lauk í dag í biskupskjöri. Kosið verður aftur þann 2. maí. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×