Innlent

Svona var Pall­borðið með Höllu Hrund, Katrínu og Baldri

Margrét Björk Jónsdóttir, Árni Sæberg og Hólmfríður Gísladóttir skrifa
Halla Hrund Logadóttir, Katrín Jakobsdóttir og Baldur Þórhallsson eru gestir Pallborðsins í dag.
Halla Hrund Logadóttir, Katrín Jakobsdóttir og Baldur Þórhallsson eru gestir Pallborðsins í dag. Vísir/Vilhelm

Baldur Þórhallsson, Halla Hrund Logadóttir og Katrín Jakobsdóttir verða gestir Pallborðsins í dag, sem verður sýnt í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14.

Til umræðu verða meðal annars niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Maskínu fyrir fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar. 

Baldur, Halla og Katrín hafa verið efstu þrjú í könnunum síðustu vikur, eftir að Halla Hrund bætti verulega við sig fylgi og fór fram úr Jóni Gnarr.

Í gær var greint frá því að Jón Gnarr mælist með umtalsvert minna fylgi í nýrri könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands en í öðrum könnunum til þessa. Katrín Jakobsdóttir trónir á toppnum í könnuninni en ekki er þó marktækur munur á henni og Höllu Hrund Logadóttur.

Í síðustu skoðanakönnun Maskínu, sem birt var 26. apríl síðastliðinn, leiddi Halla Hrund með 26,2 prósent en Katrín var í öðru sæti með 25,4 prósent fylgi og Baldur með 21,2 prósent. Jón Gnarr mældist með 15,2 prósent og Halla Tómasdóttir með 4,1 prósent.

Hólmfríður Gísladóttir fréttamaður stýrði umræðum.

Hér fyrir neðan má horfa á Pallborðið í heild.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira
×