Innlent

Ætlaði að ganga frá ál­verinu og upp á Kefla­víkur­flug­völl

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Það var rólegt á vaktinni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt.
Það var rólegt á vaktinni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Vísir/Vilhelm

Nokkuð rólegt var á vaktinni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu ef marka má yfirlit lögreglu yfir verkefni næturinnar. Þó voru 58 mál skráð í LÖKE og tveir gistu fangageymslur í morgun.

Ein tilkynning barst um líkamsárás í miðborginni og þá var tilkynnt um þjófnað í matvöruverslun í póstnúmerinu 108. Það mál var afgreitt með skýrslutöku á vettvangi.

Þá var tilkynnt um tvö minniháttar umferðarslys, í póstnúmerum 112 og 220. 

Einn var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og annar fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá voru fjórir ökumenn sektaðir fyrir of hraðan akstur.

Lögreglu barst einnig tilkynning um einstakling sem ætlaði sér að ganga Reykjanesbrautina frá álverinu í Straumsvík og upp á Keflavíkurflugvöll. Lögregla ræddi við viðkomandi og veitti honum aðstoð.

Í yfirliti lögreglu er einnig greint frá eftirför sem Vísir sagði frá í gærkvöldi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×