Erlent

Er of seint að koma í veg fyrir hungur­sneyð?

Samúel Karl Ólason skrifar
Hinn tíu ára gamli Yazan al-Kafarna, fæddist með heilahömlun en hann lést í þessum mánuði. Læknar segja hann hafa dáið vegna næringarskorts.
Hinn tíu ára gamli Yazan al-Kafarna, fæddist með heilahömlun en hann lést í þessum mánuði. Læknar segja hann hafa dáið vegna næringarskorts. AP/Hatem Al

Vannæring er orðinn svo almenn og umfangsmikil á Gasaströndinni að hungursneyð virðist óhjákvæmileg. Nærri því hver einasti íbúi svæðisins eru sagður eiga erfitt með að verða sér út um mat og er búist við að 1,1 milljón manna muni falla inn í alvarlegasta hungurflokk Sameinuðu þjóðanna á komandi vikum.

Vannærð börn streyma inn á sjúkrahús Gasastrandarinnar sem enn eru virk en sum þeirra geta ekki gengið lengur sökum orkuleysis og vannæringar.

Eitt þessara barna er Fadi al-Zant. Hann er með slímseigjusjúkdóm en fjölskylda hans hefur ekki getað fundið lyf fyrir hann um nokkuð skeið og hafa heldur ekki lengur aðgang að fjölbreyttu mataræði sem hann þarf á að halda.

„Honum fer versnandi. hann verður veikari og veikari,“ sagði móðir hans í viðtali við fréttaritara Reuters. „Hann getur ekki lengur staðið. Þegar ég hjálpa honum upp fellur hann strax niður.“

Fréttaveitan hefur eftir forsvarsmönnum hjálparsamtaka og heilbrigðisstofnana að ástandið fari sífellt versnandi. Fólk skorti mat, lyf og hreint vatn. Heilbrigðisráðuneyti Gasa, sem stýrt er af Hamas, segir að minnsta kosti 27 börn hafi dáið vegna vannæringar eða vökvaskorts á undanförnum vikum.

Í frétt AP fréttaveitunnar segir að fyrir stríðið á Gasaströndinni hafi um áttatíu prósent íbúa Gasastrandarinnar reitt sig á mannúðaraðstoð og mat skorti á nærri því helmingi allra heimila.

„Þegar fjölskyldur og heilu þjóðirnar lifa svo nærri brúninni, er allt of auðvelt fyrir átök eða önnur áföll að ýta þeim fram af í hörmungar,“ sasgði Tobias Stillmann, einn yfirmanna hjálparsamtakanna Action Against Hunger.

Hvenær er hungursneyð?

Hungursneyð er skilgreind af alþjóðlegum samtökum sem kallast Integrated Food Security Phase Classification eða IPC. Þau voru stofnuð fimmtán alþjóðastofnunum og hjálparsamtökum árið 2004, þegar hungursneyð ríkti í Sómalíu.

Samtökin nota fimm stiga skala til að skilgreina stöðu matvælaskorts og hungurs. Fimmta stigið kallast hungursneyð og felur í sér að heilu samfélagshóparnir hafi ekki aðgang að matvælum og dauðsföll séu væntanleg.

Til að ná fimmta stiginu, hungursneyð, þarf fimmtungur heimila að stríða við alvarlegan matvælaskort, þriðjungur barna þarf að þjást af vannæringu og að minnsta kosti tveir fullorðnir eða fjögur börn af hverjum tíu þúsund manns, þurfa að deyja daglega úr hungri.

Of seint

Jeremy Konyndyk, sem leiðir samtökin Refugees International og starfaði áður lengi hjá USAID, fór yfir þessar skilgreiningar í þræði á X í gær en þar sagði hann hjálparstarfsmenn nota orðið hungursneyð varkárlega og að það gæti leitt til ruglings hjá almenningi.

Benti hann til að mynda á að börn séu þegar byrjuð að deyja úr hungri en samkvæmt skilgreiningunni sé talað um yfirvofandi hungursneyð á næstu vikum. Í flestum tilfellum þegar talað væri um komandi eða yfirvofandi hungursneyð væri neyðin þegar til staðar. Það eina sem væri yfirvofandi væri yfirlýsingin um formlega hungursneyð.

Hann sagði að í rauninni væri ekki lengur hægt að koma í veg fyrir „hungursneyð“ á Gasaströndinni. Sá gluggi væri ekki opinn lengur og nú snerist hjálparstarfsemi um að draga úr áhrifum hennar og fækka dauðsföllum.


Tengdar fréttir

Veita aftur fé til UNRWA

Ísland mun greiða kjarnaframlag landsins til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) fyrir 1. apríl. Það framlag samsvarar 110 milljónum króna á ári frá þessu ári til og með ársins 2028.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×