Marka­laust hjá Genoa gegn gömlu frúnni

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Albert Guðmundsson í leik með Genoa.
Albert Guðmundsson í leik með Genoa. Vísir/Getty Images

Juventus gerði sér ekki kápu úr klæðinu þegar Albert Guðmundsson og félagar í Genoa heimsóttu þá í 29. umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar. Markalaus niðurstaða þrátt fyrir fjöldan allan af færum og Dusan Vlahovic var rekinn af velli í uppbótartíma. 

Heimamenn voru hættulegri aðili leiksins lengst af og færi gestanna af skornum skammti.

Albert Guðmundsson hafði skorað í síðustu tveimur leikjum gegn Juventus en tókst ekki að leika það eftir. Hann átti reyndar góða fyrirgjöf úr aukaspyrnu á 7. mínútu sem rataði á miðvörðinn Mattia Bani, hann stýrði skallanum á markið en markvörður Juventus gerði vel og blakaði boltanum frá.

Rétt fyrir hálfleikslok vildi Juventus sjá vítaspyrnu dæmda í tvígang, fyrst fyrir olnbogaskot sem Djed Spence gaf framherjanum Dusan Vlahovic og svo aftur örskömmu síðar þegar Federico Chiesa féll niður í teignum eftir tæklingu Djed Spence, sem slapp með skrekkinn í bæði skipti.

Það var því markalaust þegar hálfleiksflautið gall og liðin gengu til búningsherbergja. Þegar komið var út í seinni hálfleikinn hélt Juventus áfram að herja að marki gestanna.

Varamaðurinn Samuel Iling átti óvænt en gott skot þegar hann reyndi að gefa boltann fyrir markið o það endaði í stönginni. Dusan Vlahovic átti svo tvö góð skallafæri en tókst ekki að stýra boltanum á markið.

Aftur endaði skot frá Juventus í stönginni þegar Moise Kean skaut að marki á síðustu mínútu venjulegs leiktíma. Dusan Vlahovic var áminntur og svo rekinn af velli í uppbótartíma fyrir að mótmæla ákvörðun dómara.

Þrátt fyrir fjölda marktækifæra tókst Juventus ekki að finna netið, gott stig fyrir Genoa sem situr örugglega um miðja deild í 12. sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira