Landsvirkjun vonast til að hefja smíði tveggja virkjana á árinu Kristján Már Unnarsson skrifar 29. febrúar 2024 22:33 Frá fyrirhugðu stíflustæði Hvammsvirkjunar í Þjórsá. Gert er ráð fyrir að afl hennar verði 95 megavött. Landsvirkjun Hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar á síðasta ári nam 52 milljörðum króna og reyndist þetta besta rekstrarár fyrirtækisins frá stofnun þess árið 1965. Stjórn Landsvirkjunar leggur til að 20 milljarða króna arður verði greiddur til ríkisins.
Fjallað var um afkomuna í fréttum Stöðvar 2 en í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að fjárhagsstaða þess hafi aldrei verið betri. Eiginfjárhlutfall sé komið yfir 65 prósent. Skuldahlutfall hafi lækkað verulega og sé núna svipað eða betra en gengur og gerist hjá öðrum orkufyrirtækjum á Norðurlöndunum. Sigölduvirkjun var gangsett árið 1978 og er 150 megavött. Landsvirkjun áformar að stækka hana um 50 megavött.Arnar Halldórsson „Á meðan rekstur orkufyrirtækis þjóðarinnar gengur betur en nokkru sinni fyrr eru blikur á lofti í raforkumálum Íslendinga. Framkvæmdir við orkuöflun hafa tafist af ýmsum orsökum og líkur eru á því að raforkuframleiðsla nái ekki að anna eftirspurn vegna orkuskipta og almenns vaxtar samfélagsins fyrr en í fyrsta lagi á árunum 2027-28,“ er haft eftir Herði Arnarsyni forstjóra. Þar er lýst þeim vonum að hægt verði að hefja framkvæmdir við Hvammsvirkjun og Búrfellslund á árinu. Auk þess sé stefnt að því að bjóða út stækkun Þeistareykjavirkjunar og Sigölduvirkjunar síðar á árinu. „Rekstrarárin 2022-23 hafa verið einstök í sögu fyrirtækisins, einkum vegna endursamninga síðustu ára, hagstæðra aðstæðna á mörkuðum og raforkusamnings við stórnotanda sem tengdur var verðþróun á Nordpool og reyndist Landsvirkjun mjög hagstæður en er nú runninn út. Áfram eru horfur á góðri afkomu Landsvirkjunar á árinu 2024, en ekki eru líkur á því að afkoman verði jafn góð og þessi tvö ár fyrr en að endursamningum við Alcoa lýkur og nýjar aflstöðvar hefja rekstur,“ segir Hörður.
Landsvirkjun Orkumál Vatnsaflsvirkjanir Vindorka Loftslagsmál Umhverfismál Deilur um Hvammsvirkjun Efnahagsmál Vindorkuver í Búrfellslundi Tengdar fréttir Mesti hagnaður í tæplega sextíu ára sögu Landsvirkjunnar Hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar á síðasta ári nam 52 milljörðum króna. Um er að ræða besta rekstrarár fyrirtækisins frá stofnun þess árið 1965. Hagnaðurinn jókst um nítján prósent frá árinu á undan, sem var líka metár. 29. febrúar 2024 16:25 Útboð á vindmyllum í Búrfellslundi án þess að leyfi liggi fyrir Landsvirkjun hefur auglýst útboð á vindmyllum fyrir vindorkuver við Vaðöldu sem ber vinnuheitið Búrfellslundur. Verkefnið er boðið út með fyrirvara um leyfis- og skipulagsmál en sú óhefðbundna leið er farin til að flýta fyrir verkefninu. 17. janúar 2024 15:22 Ný Þjórsárbrú við Árnes sett í salt eins og Hvammsvirkjun Ný brú yfir Þjórsá á móts við Árnes, sem til stóð að bjóða út í haust, frestast um óákveðinn tíma eftir að virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar var fellt úr gildi. Oddvitar sveitarfélaganna beggja vegna Þjórsár vonast til að brúarsmíðin tefjist ekki of mikið og segja brúna hafa mikla þýðingu fyrir uppsveitir Suðurlands. 16. júlí 2023 22:20 Forstjóri Landsvirkjunar segir stefna í erfiðan raforkuskort Forstjóri Landsvirkjunar segir stefna í erfiðan raforkuskort á næstu árum ef ekki verður losað um þau virkjanaáform sem sitja föst í kerfinu. Hann skorar á sveitarfélög að blanda ekki lögbundinni skipulagsskyldu inn í ágreining við ríkið um tekjustofna. 29. júní 2023 21:48 Segir óábyrgt að leysa orkuskiptin með því að flytja framleiðslu annað Ekki verður sérstaklega virkjað vegna nýrrar stóriðju, að mati forstjóra Landsvirkjunar, sem segir orku nýrra virkjana fremur fara til fjölbreytts hóps smærri fyrirtækja sem og til orkuskipta. 25. febrúar 2023 22:20 Landsvirkjun áformar meiri orkuöflun á fjórum stöðum Ný orkuöflun Landsvirkjunar stefnir í að verða mjög umfangsmikil á næstu árum, að sögn forstjórans. Auk Hvammsvirkjunar áformar fyrirtækið stækkun virkjana á Þeistareykjum og við Sigöldu sem og vindorkulund við Búrfell. 6. desember 2022 11:12 Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira
Mesti hagnaður í tæplega sextíu ára sögu Landsvirkjunnar Hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar á síðasta ári nam 52 milljörðum króna. Um er að ræða besta rekstrarár fyrirtækisins frá stofnun þess árið 1965. Hagnaðurinn jókst um nítján prósent frá árinu á undan, sem var líka metár. 29. febrúar 2024 16:25
Útboð á vindmyllum í Búrfellslundi án þess að leyfi liggi fyrir Landsvirkjun hefur auglýst útboð á vindmyllum fyrir vindorkuver við Vaðöldu sem ber vinnuheitið Búrfellslundur. Verkefnið er boðið út með fyrirvara um leyfis- og skipulagsmál en sú óhefðbundna leið er farin til að flýta fyrir verkefninu. 17. janúar 2024 15:22
Ný Þjórsárbrú við Árnes sett í salt eins og Hvammsvirkjun Ný brú yfir Þjórsá á móts við Árnes, sem til stóð að bjóða út í haust, frestast um óákveðinn tíma eftir að virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar var fellt úr gildi. Oddvitar sveitarfélaganna beggja vegna Þjórsár vonast til að brúarsmíðin tefjist ekki of mikið og segja brúna hafa mikla þýðingu fyrir uppsveitir Suðurlands. 16. júlí 2023 22:20
Forstjóri Landsvirkjunar segir stefna í erfiðan raforkuskort Forstjóri Landsvirkjunar segir stefna í erfiðan raforkuskort á næstu árum ef ekki verður losað um þau virkjanaáform sem sitja föst í kerfinu. Hann skorar á sveitarfélög að blanda ekki lögbundinni skipulagsskyldu inn í ágreining við ríkið um tekjustofna. 29. júní 2023 21:48
Segir óábyrgt að leysa orkuskiptin með því að flytja framleiðslu annað Ekki verður sérstaklega virkjað vegna nýrrar stóriðju, að mati forstjóra Landsvirkjunar, sem segir orku nýrra virkjana fremur fara til fjölbreytts hóps smærri fyrirtækja sem og til orkuskipta. 25. febrúar 2023 22:20
Landsvirkjun áformar meiri orkuöflun á fjórum stöðum Ný orkuöflun Landsvirkjunar stefnir í að verða mjög umfangsmikil á næstu árum, að sögn forstjórans. Auk Hvammsvirkjunar áformar fyrirtækið stækkun virkjana á Þeistareykjum og við Sigöldu sem og vindorkulund við Búrfell. 6. desember 2022 11:12
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent