Erlent

Ríkis­stjórn Palestínu segir af sér

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Mohammed Shtayyeh hefur tilkynnt forsetanum um afsögn ríkisstjórnarinnar en enn er óvíst hvort Abbas tekur afsögnina gilda.
Mohammed Shtayyeh hefur tilkynnt forsetanum um afsögn ríkisstjórnarinnar en enn er óvíst hvort Abbas tekur afsögnina gilda. AP

Mohammad Shtayyeh, forsætisráðherra Palestínu frá árinu 2018, greindi frá því á blaðamannafundi í morgun að hann hefði afhent forsetanum Mahmoud Abbas afsagnarbréf fyrir hönd ríkisstjórnar sinnar.

Engar frekari upplýsingar liggja fyrir að svo stöddu en erlendir miðlar gera því skóna að með þessu sé palestínska heimastjórnin að greiða fyrir umbótum. Bandaríkjamenn hafa sagt nýja og „endurbætta“ heimastjórn eiga að taka við yfirráðum á Gasa þegar stríðinu lýkur.

Stjórnvöld Palestínu á Vesturbakkanum viðurkenna Ísrael og hafa verið viljug til að ræða svokallaða „tveggja ríkja lausn“ í deilu Palestínumanna og Ísraelsmanna. Vald þeirra er hins vegar takmarkað og þá hafa þau verið sökuð um spillingu.

Hamas-samtökin tóku yfir Gaza eftir kosningasigur árið 2006 en ólíkt palestínsku heimastjórninni eru samtökin ekki fylgjandi tveggja ríkja lausninni, þar sem þau viðurkenna ekki tilvist Ísraelsríkis.

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, kallaði herráð sitt saman á laugardag og það mun funda aftur í vikunni til að leggja drög að aðgerðum í Rafah. Hann segir mögulegt vopnahlé hugsanlega munu fresta aðgerðum á svæðinu en ekki koma í veg fyrir þær.

Bandaríkjamenn segja drög að vopnahléssamkomulagi liggja fyrir en enn eigi eftir að ræða nokkra þætti þess. Yfirvöld í Katar og Egyptalandi muni þurfa að eiga viðræður við Hamas hvað þá varðar.

Sami Abu Zuhri, háttsettur embættismaður innan Hamas, segir yfirlýsingar Netanyahu um að vopnahlé muni ekki koma í veg fyrir innrás í Rafah sýna að Ísraelsmönnum sé ekki alvara hvað varðar vopnahlésviðræðurnar.


Tengdar fréttir

Vopnahlé gæti staðið í sex vikur

Magnea Marínósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur segir skrið kominn í viðræður Ísraelsmanna og Hamasliða og að líklegt sé að fyrirhugað vopnahlé vari í allt að sex vikur eða framyfir ramadan. Á sama tíma undirbúa Ísraelsmenn að sækja inn í syðstu borg Gasa af auknum þunga.

Undir­búa aukin um­svif í Rafah sam­hliða við­ræðum um vopna­hlé

Vonir standa til að samkomulag um vopnahlé og gíslaskipti milli Ísrael og Hamas náist á næstunni. Á sama tíma undirbúa Ísraelsmenn að sækja inn í syðstu borg Gasa af auknum þunga á meðan flóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna er á barmi algjörs þrots.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×