Lífið

Atli Már og Katla til­kynna kynið

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Parið á von á sínu fyrsta barni á árinu.
Parið á von á sínu fyrsta barni á árinu. Katla Ómarsdóttir

Atli Már Steinarsson útvarpsmaður á RÚV og sambýliskona hans, Katla Ómarsdóttir, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Katla tilkynnti í færslu á samfélagsmiðlum á dögunum að von væri á stúlku.

Í færslunni má meðal annars sjá mynd af miða með orðinu stúlka. Slíkur miði er gefinn í umslag þegar konur fara í ómskoðun á 20. viku meðgöngu. 

Óhætt er að segja að árið sé mikið tímamóta ár hjá parinu en þau settu íbúð sína við Barmahlíð á sölu fyrr í mánuðinum.

Atli Már starfar sem dag­skrár­gerðarmaður á Rás 2 þar sem hann er umsjónar­maður þátt­anna Þú veist bet­ur á Rás 2 á sunnu­dags­morgn­um.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×