Handbolti

Teitur Örn Einars­son kallaður til Kölnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Teitur Örn Einarsson fær tækifæri með landsliðinu á EM
Teitur Örn Einarsson fær tækifæri með landsliðinu á EM Getty/Marius Becker

Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, hefur kallað á Teit Örn Einarsson leikmann SG Flensburg-Handewitt en hann kemur til Kölnar vegna veikinda í íslenska landsliðshópnum.

Teitur Örn var í 35 manna hópnum sem upphaflega var valinn og tilkynntur til evrópska handknattleikssambandsins. Hann var því á bakvaktinni ef eitthvað kæmi upp á. Teitur, sem er örvhent skytta, hefur leikið 35 landsleiki og skorað í þeim 36 mörk.

Teitur kemur til móts við íslenska landsliðshópinn í dag en liðið mætir Austurríki á morgun.

Ómar Ingi Magnússon og Janus Daði Smárason gátu ekki spilað leikinn á móti Króatíu vegna veikinda.

Kristján Örn Kristjánsson kom inn í hópinn og spilaði sínar fyrstu mínútur á mótinu en Viggó Kristjánsson spilaði stærsta hluta leiksins í hægri skyttustöðunni.

Teitur tekur þátt í sínu þriðja stórmóti en hann spilaði einnig á EM 2022 og á HM 2019.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×