Lífið

Tví­burar hlaupaparsins fæddir og komnir með nafn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Aldís og Kári eiga nú saman fjóra drengi.
Aldís og Kári eiga nú saman fjóra drengi. Aldís Arnarsdóttir

Afrekshlauparinn Kári Steinn Karlsson og eiginkona hans Aldís Arnardóttir, yfirmaður verslunarsviðs 66° Norðurs, eignuðust tvíburadrengi þann 8. janúar síðastliðinn.

Aldís greinir frá gleðitíðindunum í færslu á samfélagsmiðlum. 

Drengirnir mættu í heiminn eftir 35 vikna meðgöngu og hafa þegar í stað verið nefndir, Teitur Örn og Högni Karl.

„Báðir hraustir og flottir, um 11 merkur og 47 cm og almennt bara alveg eins að mati okkar foreldranna,“ skrifar Aldís við fallega mynd af tvíburunum.

Fyrir eiga hjónin tvo drengi þá Arnald fimm ára og Eystein Ara þriggja ára.


Tengdar fréttir

Hlaupaparið á von á tvíburum

Fyrrverandi afrekshlauparinn Kári Steinn Karlsson og eiginkona hans Aldís Arnardóttir, yfirmaður verslunarsviðs 66° Norðurs, eiga von á eineggja tvíburum í byrjun næsta árs. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×