Kröfur Sýnar gegn Jóni Einari ekki nægilega skýrar Árni Sæberg skrifar 19. desember 2023 17:13 Sýn vildi í stefnu meina að Jón Einar hafi valdið sér stórkostlegum skaða með því að selja aðgang að sjónvarpsefni fyrirtækisins en sjálfur vill hann meina að hann hafi bara verið að hjálpa eldri Íslendingum á Spáni að nálgast íslenskt efni í sjónvarpið sitt. Skjáskot Stefnu Sýnar á hendur Jóni Einari Eysteinssyni hefur verið vísað frá héraðsdómi. Sýn höfðaði mál á hendur honum fyrir að hafa gegn betri vitund selt ótilgreindum fjölda fólks aðgang að læstri dagskrá sjónvarpsstöðva og streymisveitu félagsins.
Í stefnunni var þess krafist að Jón Einar yrði dæmdur til refsingar fyrir að hafa allt frá 16. desember 2021, gegn betri vitund, brotið gegn höfundarrétti stefnanda með því að selja ótilgreindum fjölda fólks, meðal annars í gegnum vefsíðuna www.iptv-ice.com, aðgang að læstri dagskrá sjónvarpsstöðva og streymisveitu Sýnar gegn gjaldi Að Jón Einar veiti upplýsingar um fjölda þeirra sem hann hefur veitt aðgang að sjónvarpsstöðum og streymisveitu Sýnar frá 16. desember 2021 til höfðunar málsins og veiti jafnframt upplýsingar um heildartekjur sínar af þeirri þjónustu fyrir sama tímabil. Gerð var krafa um að Jón Einar legði fram yfirlit yfir allar færslur á bankareikningi frá 16. desember 2021. Að bótaskylda Jón Einars gagnvart Sýn vegna framangreindarar háttsemi verði viðurkennd og loks að Jón Einar yrði dæmdur til greiðslu málskostnaðar. Stefnan kom spánskt fyrir sjónir Jón Einar sagði í samtali við Vísi eftir að stefnan var birt í Lögbirtingablaðinu að hún hefði komið honum spánskt fyrir sjónir. „Mér finnst þetta harkaleg stefna en ég læt bara minn lögmann um þetta. Það verður náttúrlega að svara þessu eins og hægt er.“ Málsástæða í stefnu, sem er bannað Lögmaður Jóns Einars krafðist þess fyrir hönd hans að málinu yrði vísað frá dómi og málflutningur um frávísunarkröfu fór fram í nóvember. Við munnlegan málflutning mótmælti Sýn þeim kröfum en lýsti því yfir að félagið gerði þær breytingar á fyrstu tveimur kröfunum í stefnu að orðið „ólögmætan“ félli út úr þeim kröfum. Í niðurstöðukafla úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur segir að þrátt fyrir þá breytingu yrði litið svo á að kröfugerð Sýnar, eins og félagið hafi kosið að orða hana, hafi enn að geyma málsástæðu sem þar eigi ekki heima. Af þeim sökum sé óhjákvæmilegt annað en að vísa kröfu Sýnar samkvæmt fyrsta tölulið stefnunnar frá dómi án kröfu. Of opin og óskýr Hvað varðar annan kröfulið, um að Jóni Einari yrði gert að afhenda ýmis gögn, segir í úrskurðinum að Sýn hafi kosið að orða kröfugerð sína með þeim hætti að krefjast upplýsinga um fjölda þeirra sem hann hefur „veitt aðgang að sjónvarpsstöðvum og streymisveitum stefnanda“ á tilgreindu tímabili auk upplýsinga um tekjur af „þeirri þjónustu“. Sýn hafi á hinn bóginn ekki afmarkað þessa kröfugerð sína nánar til samræmis við ákvæði höfundalaga, sem mæla fyrir um einkarétt höfundar að verki sínu og til að gera það aðgengilegt almenningi. Af þeim sökum sé óhjákvæmilegt að líta svo á að tilgreining þeirra athafna sem vísað er til í kröfugerðinni sé of opin og óskýr um þá háttsemi sem til er vísað og standist því ekki áskilnað laga um meðferð einkamála um skýrleika kröfugerðar. Þá yrði og fallist á það með Jóni Einar hvað varðar kröfu um afhendingu bankaupplýsinga frá 16. desember 2021 án tilgreiningar lokadags, sem litið skuli til í því tilviki að hann sé ekki nægilega ákveðinn og ljós. Að framansögðu virtu verði kröfu Sýnar í öðrum tölulið í stefnu vísað frá dómi. Bótakrafan getur ekki staðið sjálfstæð Í úrskurðinum segir að í þriðja kröfulið krefjist Sýn þess að bótaskylda Jóns Einars vegna „framangreindrar háttsemi“ yrði viðurkennd. Sýn hafi kosið að orða kröfu sína með þeim hætti að krafa þessa kröfuliðar standi ekki sjálfstæð en vísi beint til annarra kröfuliða í stefnu. Að því virtu sem og því að dómurinn hafi þegar vísað frá dómi þeim kröfum Sýnar, sem vísað er til í þessu sambandi, sé óhjákvæmilegt annað en að vísa kröfu Sýnar samkvæmt þriðja tölulið í stefnu frá dómi. „Samkvæmt framangreindu telur dómurinn málatilbúnað stefnanda vera í andstöðu við meginreglur einkamálaréttarfars um ljósa og skýra kröfugerð. Verður ekkihjá því komist að vísa málinu frá dómi í heild sinni.“ Þá var Sýn gert að greiða Jóni Einari 300 þúsund krónur. Vísir er í eigu Sýnar.
Sýn Spánn Bíó og sjónvarp Fjölmiðlar Netglæpir Fjarskipti Tækni Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Innlent Fleiri fréttir Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Bein útsending: Kynnir fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Sjá meira