Körfubolti

Leik­maður sem spilaði í NBA á­kærður fyrir morð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Chance Comanche samdi við Sacramento Kings í byrjun október. Nokkrum dögum síðar lét félagið hann fara.
Chance Comanche samdi við Sacramento Kings í byrjun október. Nokkrum dögum síðar lét félagið hann fara. getty/Lachlan Cunningham

Leikmaður í bandarísku G-deildinni í körfubolta hefur verið ákærður fyrir morð ásamt kærustu sinni.

Chance Comanche og kærasta hans eru grunuð um að hafa orðið ungri konu að bana í Las Vegas.

Comanche og kærastan mæltu sér mót við konuna 5. desember. Tveimur dögum síðar var tilkynnt um hvarf hennar. Lík hennar fannst svo í Nevada.

Kærasta Comanches var handtekin á miðvikudaginn og hann sjálfur á föstudaginn. Hann á að mæta fyrir rétt á morgun.

Félag Comanches, Stockton Kings, rifti samningi hans eftir að hann var handtekinn. Hann lék einn leik með Portland Trail Blazers í NBA-deildinni í apríl á þessu ári.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×