Handbolti

Frakk­land á­fram með fullt hús stiga í milli­riðil

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Frakkland flaug áfram.
Frakkland flaug áfram. EPA-EFE/Beate Oma Dahle

Frakkland vann Slóveníu með fjögurra marka mun í uppgjöri toppliða D-riðils, sama riðli og Ísland var í á HM kvenna í handbolta. Ísland og Angóla gerðu jafntefli fyrr i kvöld sem þýðir að Ísland leikur um Forsetabikarinn.

Í B-riðli vann Svartfjallaland sex marka sigur á Ungverjalandi, lokatölur 24-18. Dijana Mugosa var markahæst í sigurliðinu með átta mörk, þar á eftir kom Tatjana Brnovic með sjö mörk.

Það er því Svartfjallaland sem fer áfram í milliriðil með fjögur stig á meðan Ungverjaland fer áfram með tvö stig. Kamerún komst einnig í milliriðil en fer þangað stigalaust.

Í D-riðli vann Frakkland eins og áður sagði sigur á Slóveníu, lokatölur 31-27. Tryggðu Frakkar sér þar með sigur í riðlinum. 

Léna Grandveau var markahæst hjá Frakklandi með sex mörk. Chloé Valentini kom þar á eftir með fimm mörk. Frakkland fer því í milliriðil með fjögur stig, Slóvenía tvö stig og Angóla stigalaust.

Í F-riðli vann Þýskaland einstaklega öruggan sigur á Póllandi, lokatölur 33-17. Alina Grijseels var markahæst hjá Þýskalandi með sjö mörk úr jafn mörgum skotum. Xenia Smits og Antje Döll skoruðu fimm mörk hvor.

Þær þýsku sigla inn í milliriðil með fjögur stig í farteskinu. Pólverjar taka tvö með sér og þá komst Japan áfram en verða án stiga í milliriðlinum.

Í H-riðli vann Holland þægilegan 13 marka sigur á Tékklandi, lokatölur 33-20. Bo Van Wetering var markahæst hjá Hollandi með sjö mörk úr jafn mörgum skotum. Þær Laura Van Der Heijden og Nikita Van Der Vliet komu þar á eftir með fimm mörk hvor.

Holland rúllaði riðlinum upp og fer með fjögur stig í milliriðil, Tékkland tekur tvö með sér en Argentína fer án stiga í milliriðil.

Á morgun, þriðjudag, lýkur riðlakeppninni og þá verður ljóst hvernig milliriðlarnir líta út.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×