Handbolti

Ómar og Janus skoruðu níu í Íslendingaslag

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Janus Daði Smárason skoraði fjögur mörk fyrir Magdeburg í dag.
Janus Daði Smárason skoraði fjögur mörk fyrir Magdeburg í dag. Mario Hommes/DeFodi Images via Getty Images

Ómar Ingi Magnússon og Janus Daði Smárason skoruðu samtals níu mörk er Magdeburg vann góðan tveggja marka sigur gegn Gummersbach í Íslendingaslag í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 32-30.

Heimamenn í Magdeburg tóku forystuna snemma leiks og voru fljótt komnir með fimm marka forystu í stöðunni 9-4. Gestirnir vöknuðu þá til lífsins og minnkuðu muninn niður í eitt mark í nokkur skipti fyrir hálfleik, en staðan var 18-16, Magdeburg í vil, þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Gestirnir í Gummersbach byrjuðu síðari hálfleikinn af miklum krafti og náðu forystunni snemma eftir hlé. Mest náðu þeir þriggja marka forskoti í stöðunni 2023, en heimamenn snéru leiknum sér í hag á ný stuttu síðar.

Þýsku meistararnir í Magdeburg héldu forystunni það sem eftir lifði leiks og unnu að lokum góðan tveggja marka sigur, 32-30. Janus Daði skoraði fjögur mörk fyrir Magdeburg og Ómar Ingi skoraði fimm. Elliði Snær Viðarsson skoraði fjögur fyrir Gummersbach.

Með sigrinum lyfti Magdeburg sér á topp þýsku deildarinnar með 25 stig eftir 14 leiki, 11 stigum meira en Gummersbach sem situr í áttunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×