Handbolti

Skýrsla Vals: Franska 103 – staðið

Valur Páll Eiríksson skrifar
Elín Jóna Þorsteinsdóttir var best meðal jafningja í dag.
Elín Jóna Þorsteinsdóttir var best meðal jafningja í dag. EPA-EFE/Beate Oma Dahle

Ísland tók þungan grunnkúrs í frönsku á HM kvenna í handbolta í Stafangri í dag. Námsáætlunin var þétt og kennarinn strangur.

„Við þurfum að læra helling og skoða helling en það var líka vitað fyrirfram að þetta yrði lærdómsferð,“ sagði landsliðsþjálfarinn í gær. Frönskuáfangi dagsins var býsna þungur.

Og það lá raunar alveg fyrir að kúrsinn yrði erfiður. Erfiður er tæplega nógu sterkt orð. Lið á sínu fyrsta heimsmeistaramóti í tólf ár að takast á við Ólympíumeistara sem voru í vígahug eftir lélegan leik gegn Angóla tveimur dögum fyrr.

Leikurinn byrjaði náttúrulega á ósanngjörnum víta- og tveggja mínútna dómi á Theu. Það hjálpaði ekki. Frakkland skoraði fyrstu sjö mörkin. Ljóst var í hvað stefndi.

Frakkar þurftu varla að stilla upp í sókn í fyrri hálfleik. Liðið skoraði eiginlega einvörðungu úr hröðum upphlaupum, seinni bylgju, eða í tómt íslenskt markið. 

Það var eins og tíminn hefði byrjað klukkan átta daginn eftir skólaball og strangur frönskukennarinn var gjörsamlega að láta sofandi íslensku nemendurna heyra það.

Sandra Erlingsdottir var markahæst í íslenska liðinu í dag.EPA-EFE/Beate Oma Dahle

Þessi hraði bolti Frakka er eitthvað sem Ísland reynir við og hefur þróað með sér undir stjórn Arnars. Það fæst vart betri skóli.

Liðið virtist ná tökum á frönskunni nokkuð hratt eftir því sem leið á. Eftir bratta byrjun sótti íslenska liðið í sig veðrið. Yngri leikmenn fengu tækifæri til að sanna sig sem mun reynast þeim dýrmætt.

Elín Jóna Þorsteinsdóttir stóð upp úr. Það var engin þynnka þar. Var eins og skiptinemi frá Frakklandi sem var farin að slá kennaranum við. Fjögur varin víti og nokkur dauðafæri í þokkabót.

Það rættist vel úr þessu erfiða verkefni. Við unnum seinni hálfleikinn og eftir þessa strembnu byrjun á önninni náðist að standast áfangann.

Líkt og ég sagði eftir leik í fyrradag var lærdómskúrfan brött gegn Slóveníu og hún var það einnig í kvöld. Ekki náðist að læra það frá Slóveníuleiknum að byrja leikinn af krafti en það hlýtur að takast gegn Angólu á mánudaginn kemur.

Þar er útskrift undir. Milliriðill eða forsetabikar.


Tengdar fréttir

Ásmundi varpað upp sem tvífara Cantona

Ásmundi Einari Daðasyni, mennta- og barnamálaráðherra, var varpað upp á risaskjáinn í DNB-höllinni í Stafangri á meðan leik Íslands og Frakklands stóð. Ekki var það til að benda á að ráðherra frá Íslandi væri í salnum.

„Stigs­munur á þessum liðum, vitum það alveg“

„Hrikalega erfið byrjun, það er svona það fyrsta sem kemur upp í hugann,“ sagði Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta. Ísland tapaði með níu marka mun gegn Ólympíumeisturum Frakklands á HM fyrr í dag í leik þar sem Frakkar komust í 7-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×