Handbolti

Þessar sex­tán spila gegn Slóveníu í dag

Valur Páll Eiríksson skrifar
Díana Dögg Magnúsdóttir er á sínum stað í liðinu.
Díana Dögg Magnúsdóttir er á sínum stað í liðinu. Vísir/Hulda Margrét

Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari Íslands, hefur valið þá 16 leikmenn sem verða á skýrslu er Ísland mætir Slóveníu í fyrsta leik á HM kvenna í handbolta í Stafangri í dag.

Íslenska liðið hefur leik á HM 2023 kvenna í dag kl. 17:00 þegar þær mæta Slóveníu í D-riðli. Leikið verður í DNB Arena í Stafangri og verður leiknum textalýst beint á Vísi.

18 leikmenn eru með í för í Noregi en aðeins 16 leikmenn mega vera á leikskýrslu hverju sinni.

Fátt kemur á óvart í liðsvalinu en þær Elísa Elíasdóttir úr ÍBV og Katla María Magnúsdóttir úr liði Selfoss hvíla og verða utan hóps í dag. Þær munu því horfa á leikinn úr stúkunni.

Þjálfarateymið hefur valið þá sextán leikmenn sem leika fyrir hönd Íslands í dag:

Markverðir:

Elín Jóna Þorsteinsdóttir, EH Aalborg (48/1)

Hafdís Renötudóttir, Valur (49/2)

Aðrir leikmenn:

Andrea Jacobsen, Silkeborg-Voel (44/69)

Berglind Þorsteinsdóttir, Fram (15/5)

Díana Dögg Magnúsdóttir, BSV Sachsen Zwickau (43/54)

Elín Rósa Magnúsdóttir, Val (8/13)

Hildigunnur Einarsdóttir, Val (98/112)

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Skara HF (7/8)

Katrín Tinna Jensdóttir, Skara HF (13/6)

Lilja Ágústsdóttir, Val (13/6)

Perla Ruth Albertsdóttir, Selfossi (37/57)

Sandra Erlingsdóttir, Tus Metzingen (25/111)

Sunna Jónsdóttir, ÍBV (79/60)

Thea Imani Sturludóttir, Val (67/131)

Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Val (36/29)

Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (126/365)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×