Lífið

Gleði og ást við völdin í Köben

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ólafur og Guðrún Ragna virðast ástfangin upp fyrir haus.
Ólafur og Guðrún Ragna virðast ástfangin upp fyrir haus.

Guðrún Ragna Hreinsdóttir, gæðastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík, og Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda hafa gert vel við sig í mat og drykk í Kaupmannahöfn undanfarna daga. Þau eru eitt nýjasta par landsins.

„Góðir dagar í Kaupmannahöfn með mikilli aðventu-hygge, glöggi og góðum mat,“ segir í færslu parsins á Instagram þar sem sjá má myndir úr ferð þeirra til Danmerkur.

Guðrún hefur verið í fararbroddi hjá Íslandsdeild Empower Nepali Girls en hún hefur sótt Nepal nokkrum sinnum heim. Hún er mikil útivistarkona og fór síðast í ævintýraferð með Fjallafélaginu til Dólómítana á Ítalíu. Ólafur er fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins og Morgunblaðsins.

Ólafur á þrjú börn úr fyrra sambandi og Guðrún Ragna einn son.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×