Körfubolti

Myndaveisla: Grind­víkingar tóku yfir Smárann

Smári Jökull Jónsson skrifar
Þessar stúlkur voru ánægðar með sitt fólk.
Þessar stúlkur voru ánægðar með sitt fólk. Vísir/Hulda Margrét

Það var sannkallaður Grindavíkurdagur í Smáranum í gær þegar körfuboltalið félagsins í karla- og kvennaflokki léku í Subway-deildunum. Mikil stemmning var á svæðinu og gulur og blár litur allsráðandi.

Kvennalið Grindavíkur mætti Þór frá Akureyri í Subway-deild kvenna og vann öruggan þrjátíu stiga sigur 93-63. Karlaliðið fylgdi því eftir með öðrum góðum sigri en þeir lögðu Hamar 100-80 fyrir framan mikinn fjölda áhorfenda.

Gríðarleg stemmning var í Smáranum. Boðið var upp á fisk og franskar og þá var búið að setja upp stuðningsmannasvæði á Kópavogsvelli en Breiðablik var Grindavík innan handar með skipulagningu dagskrár.

Hér fyrir neðan má sjá myndir sem Hulda Margrét ljósmyndari Vísis tók í Smáranum í gær.

Grindavíkurkonur hófu daginn á góðum sigri.Vísir/Hulda Margrét
Hekla Eik Nökkvadóttir og Hulda Björk Ólafsdóttir fagna í leikslok en þær eru báðar uppaldir Grindvíkingar.Vísir/Hulda Margrét
Hörður Unnsteinsson stjórnandi Subway Körfuboltakvölds kvenna var mættur í Smárann.Vísir/Hulda Margrét
Ólöf Helga Pálsdóttir og Bryndís Guðmundsdóttir voru sérfræðingar Subway Körfuboltakvölds í gær.Vísir/Hulda Margrét
Ingibergur Þór Jónasson formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur og Eva Braslis ræða saman eftir leik.Vísir/Hulda Margrét
Helga Vala Helgadóttir fyrrum þingkona var mætt til að styðja Grindavík í gær.Vísir/Hulda Margrét
Fólk var ánægt að geta hitt hvort annað í Smáranum í gær.Vísir/Hulda Margrét
Hjörtun slógu fyrir Grindavík í gær.Vísir/Hulda Margrét
Þessi var vel merktur í gulu og bláu.Vísir/Hulda Margrét
Einbeitigin skein úr hverju andliti.Vísir/Hulda Margrét
Guli og bláu liturinn var á mörgum andlitum.Vísir/Hulda Margrét
Vísir/Hulda Margrét
Rýnt í stöðu mála úr stúkunni.Vísir/Hulda Margrét
Unga fólkið skemmti sér vel.Vísir/Hulda Margrét
Grindvíkingar gátu brosað í gær.Vísir/Hulda Margrét
Gleðin var allsráðandi.Vísir/Hulda Margrét
Einbeitingin í botni.Vísir/Hulda Margrét
Grindvíkingar í stúkunni.Vísir/Hulda Margrét
Það þarf víst að skrásetja allt.Vísir/Hulda Margrét
Stuðningsmenn Grindavíkur.Vísir/Hulda Margrét
Stinningskaldi í miklu fjöri.Vísir/Hulda Margrét
Menn fögnuðu sínu fólki.Vísir/Hulda Margrét
Þessi ungi drengur fylgdist vel með því sem fram fór.Vísir/Hulda Margrét
Það var hugur í Grindvíkingum í gær.Vísir/Hulda Margrét
Unga fólkið fann sér ýmislegt að gera á meðan á leik stóð.Vísir/Hulda Margrét
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands var mættur í Smárann og fór í viðtal á Stöð 2 Sport.Vísir/Hulda Margrét
Það var bjart yfir Grindvíkingum í stúkunni í gær.Vísir/Hulda Margrét
Stuðningsmenn Hamars voru einnig duglegir að hvetja sína menn til dáða.Vísir/Hulda Margrét
Stuðningsmenn Hamars voru í stuði.Vísir/Hulda Margrét
Þessir fögnuðu vel.Vísir/Hulda Margrét
Stinningskaldi lét vel í sér heyra.Vísir/Hulda Margrét
Gulur og blár litur var allsráðandi í stúkunni.Vísir/Hulda Margrét
Þessir strákar voru í miklu stuði.Vísir/Hulda Margrét
Guðni Th. Jóhannesson forseti ásamt Hannesi S. Jónssyni framkvæmdastjóra KKÍ og Guðbjörgu Norðfjörð formanni.Vísir/Hulda Margrét
Menn voru glaðir að leikjunum loknum.Vísir/Hulda Margrét
King Kane fáni Grindavíkur var rifinn upp til heiðurs DeAndre Kane leikmanns liðsins.Vísir/Hulda Margrét
Stemmningin í Smáranum var afar góð.Vísir/Hulda Margrét
Stuðningsmenn Grindavíkur létu vel í sér heyra á pöllunum.Vísir/Hulda Margrét
Arnór Tristan Helgason hefur slegið í gegn síðustu vikur í liði Grindavíkur.Vísir/Hulda Margrét
Ólafur Ólafsson er fyrirliði Grindavíkur.Vísir/Hulda Margrét
Ungir Grindvíkingar fagna með DeAndre Kane í leikslok.Vísir/Hulda Margrét
Grindvíkingar tóku yfir Smárann í gær.Vísir/Hulda Margrét




Fleiri fréttir

Sjá meira


×