Innlent

Mikið á­lag á bráðamóttökunni

Jón Þór Stefánsson skrifar
Fólk sem er ekki í bráðri hættu er beðið um að leita ekki beint á bráðamóttökuna.
Fólk sem er ekki í bráðri hættu er beðið um að leita ekki beint á bráðamóttökuna. Vísir/Vilhelm

Mikið álag er á bráðamóttökunni í Fossvogi stundina. Þar bíða margir eftir þjónustu.

Fólk sem er ekki í bráðri hættu er beðið um að hringja fyrst í 1700 eða leita upplýsinga á netspjalli Heilsuveru áður en leitað er þangað.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum.

„Á bráðamóttökunni er forgangsraðað eftir bráðleika. Við aðstæður eins og nú eru getur fólk sem ekki er í bráðri hættu því þurft að bíða lengur en annars eftir þjónustu. Ef því verður mögulega við komið er þess vegna æskilegt að reyna að leita annað,“ segir þar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×