Enski boltinn

Íhuga að vera með leiki í ensku úrvalsdeildinni á aðfangadag

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jólasveinninn gæti mætt á leik í ensku úrvalsdeildinni á aðfangadag.
Jólasveinninn gæti mætt á leik í ensku úrvalsdeildinni á aðfangadag. getty/Nick Potts

Forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar íhuga að vera með leiki á aðfangadag.

Samkvæmt enskum fjölmiðlum gæti allavega einn leikur verið færður af Þorláksmessu og yfir á aðfangadag.

Stærsti leikurinn, milli Arsenal og Liverpool, verður þó ekki settur yfir á aðfangadag.

Aðeins einn leikur hefur verið á aðfangadag í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Leeds United vann Manchester United, 3-1, á aðfangadag 1995.

Stærsta ástæðan fyrir því að ekki hafa verið fleiri leikir á aðfangadag er hversu erfitt það gæti verið fyrir stuðningsmenn að ferðast á leikina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×