Handbolti

Sigvaldi Björn markahæstur í sterkum sigri gegn Kiel

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Sigvaldi hefur notið góðs gengir í liði Kolstad upp á síðkastið
Sigvaldi hefur notið góðs gengir í liði Kolstad upp á síðkastið

Þremur leikjum var að ljúka í Meistaradeild karla í handbolta. Íslendingaliðin Kolstad og Veszprém unnu bæði sína leiki en Sigvaldi Björn fór á kostum og skoraði tíu mörk í 34-30 sigri Kolstad gegn Kiel.

Kiel var ósigrað í fyrstu fjórum leikjum sínum fyrir þennan. Heimamenn í Kolstad tóku forystuna um miðjan fyrri hálfleik en leikurinn jafnaðist fljótlega út og hélt spennunni fram í seinni hálfleikinn. 

En frábær varnarleikur á lokasprettinum sá til þess að Kolstad tók stigin tvö, þeir lokuðu algjörlega á Kiel í rúmlega sjö mínútur og fóru frá því að vera einu marki yfir í að leiða með sex. Gestirnir frá Kiel klóruðu aðeins í bakkann en áttu aldrei möguleika á sigrinum. 

RK Zabreg lagði svo RK Eurofarm Pelister að velli 27-18 í hinum leik A riðilsins. Pelister liðið er enn án sigurs eftir fimm leiki og situr í neðsta sæti riðilsins. Á toppnum eru PSG og Kiel, með Kolstad tveimur stigum fyrir aftan þau eftir sigur dagsins. 

Í B riðlinum unnu svo Bjarki Már Elíasson og liðsfélagar hans í Veszprém stórsigur gegn Wisła Płock, 28-21. Bjarki Már skoraði 1 mark í leiknum með 100% skotnýtingu og gaf eina stoðsendingu. 

Veszprém tekst með þessum sigri að jafna GOG að stigum í öðru sætingu, eini tapleikur Veszprém hingað til var einmitt gegn GOG, eini tapleikur þeirra var svo í síðustu umferð gegn Barcelona sem Veszprém mætir í næstu umferð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×