Golf

Ryder bikarinn: Hovland og Åberg með sögulegan sigur

Siggeir Ævarsson skrifar
Viktor Hovland og Ludvig Aberg fóru á kostum í morgun
Viktor Hovland og Ludvig Aberg fóru á kostum í morgun Vísir/Getty

Yfirburðir Evrópuliðsins halda áfram í Ryder bikarnum en þeir Viktor Hovland og Ludvig Åberg unnu sögulegan sigur í morgun þegar þeir kláruðu sinn leik á ellefu holum.

Hovald og Åberg öttu kappi við Scottie Scheffler og Brooks Koepka þar sem Evrópumennirnir unnu fjórar fyrstu holurnar. Næstu þrjár voru jafnar og spennandi og Bandaríkjamennirnir virtust vera að ná sér á strik  en þá tók við glæsilegur kafli hjá Evrópumönnunum sem fóru næstu fjórar holur allar á fugli meðan Scheffler og Koepka voru ýmist á pari eða einu yfir.

Leiknum var því lokið eftir aðeins ellefu holur en aldrei í sögu Ryder bikarins hefur viðureign unnist á jafn miklum mun. Scheffler, sem er efstur á heimslistanum um þessar mundir, virtist taka tapið mjög nærri sér en hann felldi tár og virtist vera í miklu tilfinningalegu uppnámi.

Þetta var önnur viðureign dagsins en Evrópuliðið vann fyrstu viðureign dagsins naumlega þar sem úrslitin réðust á 17. holu. Max Homa og Brian Harman færðu Bandaríkjunum fyrsta sigur dagsins í þriðju viðureigninni en Evrópuliðið komst aftur á beinu brautina í lokaviðureign fyrri umferðar dagsins.

Jon Rahm var aftur hársbreidd frá því að fara holu í höggi en hann og Tyrrell Hatton lögðu Patrick Cantlay og Xander Schauffele í spennandi einvígi þar sem Evrópumennirnir kláruðu dæmið á 16. og 17 holu eftir sterka frammistöðu frá Bandaríkjunum á seinni hluta vallarins.

Evrópuliðið leiðir því með 9,5 stig gegn 2,5 stigi Bandaríkjanna eftir fyrri umferð dagsins. Keppni hefst á ný innan stundar þar sem Viktor Hovland og Ludvig Åberg etja kappi við Sam Burns og Collin Morikawa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×