Innlent

Átta­tíu og fimm manna samninga­nefnd Eflingar vill hefja við­ræður

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar fagnar því að félagsmenn hafi áhuga á að móta kröfugerð félagsins.
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar fagnar því að félagsmenn hafi áhuga á að móta kröfugerð félagsins. Stöð 2/Arnar

Áttatíu og fimm eru í nýrri samninganefnd Eflingar sem fundaði í fyrsta sinn í gær. Félagið ætlar að sækja krónutöluhækkanir í komandi kjaraviðræðum og formaður fagnar því að nýtt fólk sé í brúnni hjá viðsemjendum.

Samninganefnd Eflingar í síðustu kjaraviðræðum var sú stærsta sem hefur verið mynduð og sú nýja gefur lítið eftir en í henni sitja áttatíu og fimm félagsmenn. Nefndin fundaði í fyrsta sinn í gærkvöldI og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður segir hana samanstanda af Eflingarfólki í fjölbreyttum störfum.

„Við erum auðvitað bara glöð og ánægð að sjá að fólk vill sannarlega taka þátt í því að móta kröfugerð og fara í kjarasamninga fyrir sitt félag,“ segir Sólveig Anna.

Síðasta samninganefnd Eflingar vakti mikla athygli en ný nefnd er svipuð að stærð.Vísir/Vilhelm

Samningur Eflingar við Samtök atvinnulífsins rennur út þann 31. janúar.

„Ég mun núna strax eftir helgi senda erindi til Samtaka atvinnulífsins og óska eftir því að þau undirriti sem allra fyrst viðræðuáætlun við okkur svo við getum byrjað samtalið.“

Óhætt er að segja að síðustu viðræður hafi gengið brösulega en þáverandi ríkissáttasemjari steig til hliðar í deilunni eftir að hafa lagt fram umdeilda miðlunartillögu sem rataði fyrir dómstóla. Nýskipaður ríkissáttasemjari lagði síðar fram aðra miðlunartillögu sem var að lokum samþykkt. 

Sólveig vonar að þessar viðræður þróist á annan hátt og að félög innan Alþýðusambandsins geti einnig sameinast um samninga í þágu tekjulágra.

„Ég vona líka að Alþýðusambandið geti líka sameinast um það að sækja fram á ríkið með kröfur um að lífskjörum fólks sem þjáist á leigumarkaði verði lyft upp. Svo vona ég auðvitað að Samtök atvinnulífsins komi fram með öðrum hætti og hef fulla trú á að það gerist.“

Sigríður Margrét Oddsdóttir mun nú í fyrsta sinn koma að viðræðunum fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins en Halldór Benjamín Þorbergsson lét af störfum í vor. Sólveig kveðst ánægð með mannabreytingar hjá ríkissáttasemjara og samtökunum.

„Ég er afskaplega glöð með að sjá ný andlit á báðum þessum stöðum,“ segir Sólveig.

Efling muni fara fram á krónutöluhækkanir og langtímasamning.

„Og við setjum fram kröfu um að stjórnvöld bregðist við þeirri húsnæðiskrísu sem er að rústa lífi félagsfólks Eflingar á hverjum degi.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×