Innherji

Blackrock eignast yfir fimmtungs­hlut eftir niður­fellingu á milljarða skuldum

Hörður Ægisson skrifar
Svínn Johan Dennelind, sem er í forsvari fyrir félagið Iceland Star Property sem hefur eignast meirihluta í Icelandic Water Holdings, og Jón Ólafsson, fyrrverandi aðaleigandi og stjórnarformaður fyrirtækisins. Þeir feðgararnar Jón og Kristján eiga sæti í níu manna stjórn félagsins. 
Svínn Johan Dennelind, sem er í forsvari fyrir félagið Iceland Star Property sem hefur eignast meirihluta í Icelandic Water Holdings, og Jón Ólafsson, fyrrverandi aðaleigandi og stjórnarformaður fyrirtækisins. Þeir feðgararnar Jón og Kristján eiga sæti í níu manna stjórn félagsins. 

Bandaríski sjóðastýringarrisinn BlackRock eignaðist meira en fimmtungshlut af útgefnu almennu hlutafé Icelandic Water Holdings, sem starfrækir vatnsverksmiðju í Ölfusi, gegn eftirgjöf skulda upp á nærri fjóra milljarða þegar endurskipulagning á fjárhag íslenska fyrirtækisins var kláruð í sumar. BlackRock er í hópi ráðandi hluthafa sem geta beitt neitunarvaldi ef til stendur meðal annars að selja fyrirtækið eða gefa út nýja hluti sem verðmetur það á undir jafnvirði 25 milljarða króna.


Tengdar fréttir

Vatnsverksmiðja Jóns Ólafssonar tapaði yfir tveimur milljörðum

Þrátt fyrir áskoranir vegna kórónuveirufaraldursins þá jukust tekjur Icelandic Water Holdings, sem starfrækir vatnsverksmiðju í Ölfusi sem var reist af Jóni Ólafssyni árið 2004, um átta prósent á árinu 2020 og námu samtals tæplega 27 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði um 3,5 milljarða króna á gengi dagsins í dag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×