Innlent

Blöskrar um­­fjöllun um pistil Páls í Morgun­blaðinu: „Svona gera menn ekki“

Lovísa Arnardóttir skrifar
Ólafur Stephensen, Kristín Eysteinsdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafa öll lýst yfir vonbrigðum með endursögn Staksteina Morgunblaðsins á pistli bloggarans Páls Vilhjálmssonar um Samtökin ´78.
Ólafur Stephensen, Kristín Eysteinsdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafa öll lýst yfir vonbrigðum með endursögn Staksteina Morgunblaðsins á pistli bloggarans Páls Vilhjálmssonar um Samtökin ´78. Vísir/Heiðar

Rektor Listaháskólans hefur beðið Morgunblaðið að birta ekki viðtal við sig sem átti að birta undir merki Dagmála eftir helgi. Blaðið birti í Staksteinum sínum í dag umfjöllun um pistil bloggarans Páls Vilhjálmssonar. Pistilinn kallar formaður Viðreisnar falsfréttir. 

Kristín Eysteinsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands, hefur beðið Morgunblaðið um að birta ekki viðtal sem var tekið við hana um starf skólans og átti að birta á vef miðilsins eftir helgi undir merki Dagmála. Ástæðan er umfjöllun um pistil bloggarans Páls Vilhjálmssonar í blaði miðilsins í dag, þegar það er í aldreifingu, í Staksteinum blaðsins. Pistill Páls birtist upprunalega á bloggi hans í gær.

Í pistlinum kvartar Páll undan „lífsskoðunarfélaginu Samtakanna ´78“ og segir það mistök að hafa „hleypt þeim inn í skólastarf“. Fjölmargir hafa fordæmt birtingu pistilsins, segja hann falsfrétt og að þar sé birtur áróður gegn Samtökunum ´78 sem eigi sér enga stoð í raunveruleikanum.

Kristín segir í færslu sem hún birti á Facebook-síðu sinni í dag að sem hinsegin manneskja og foreldri hinsegin barns hafi hún ekki séð annað í stöðunni en að bregðast við birtingu pistilsins, sérstaklega í ljósi umræðu síðustu daga þar sem hallað hefur mjög á hinsegin samfélagið.

„Hef mikið verið að hugsa um hvað er hægt að gera í þessari holskeflu fordóma, hatursorðræðu og rangfærslum sem dynja á hinsegin fólki þessa dagana. Sjálf hef ég ákveðið að leggja mitt af mörkum sem hinsegin manneskja og foreldri hinsegin barns því ég ætla ekki að sætta mig við að fjölmiðill í aldreifingu birti svona rangfærslur og meiðandi hatursáróður,“ segir Kristín og að hún hafi því hringt í blaðamann Morgunblaðsins og beðið um að viðtalið yrði ekki birt og að það mætti birta það þegar þær rangfærslur sem settar eru fram í pistli Páls hafi verið leiðréttar.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segir einnig í Facebook-færslu það átakanlegt að Morgunblaðið birti falsfrétt um fræðslustarf Samtakanna 78.

Þorgerður Katrín segir eðlilegt að eiga skoðanaskipti í hverju lýðræðissamfélagi en að þar eigi ekki að vera „skjól fyrir hatursfullar og meiðandi skoðanir un tilverurétt einstaklinga. Hver og ein einasta manneskja í lýðræðissamfélagi er hlekkur í lýðræðiskeðjunni. Og saman ber samfélagið þannig ábyrgð á því - hvernig það þróast áfram,“ segir Þorgerður Katrín og að hún hafi töluverðar áhyggjur af því að pólarísering bandarískrar umræðu sé komin hingað til lands.

„Þetta er ekki góð leið í lýðræðissamfélagi. Auðvitað eigum við að geta tekið samtalið án úthrópanna. En samtalið þarf þá hið minnsta að byggjast á staðreyndum. Ekki falsfréttum eða hreinum óhróðri. Það er lágmarkskrafa.“

Einnig hefur Ólafur Stephenssen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, Fréttablaðsins og annarra miðla, tjáð sig um málið en hann segir það vont að ritstjórar blaðsins „dreifi hatursbulli Páls Vilhjálmssonar í garð Samtakanna 78 með því að endurbirta það í Staksteinum. Lesendur geta ekki einu sinni varizt ófögnuðinum með því að segja upp áskriftinni, því að Mogginn kemur óumbeðinn inn um lúguna á fimmtudögum. Svona gera menn ekki.“

Þá hefur annar ritstjóra Heimildarinnar tjáð sig um pistilinn í dag. 

Fjölmargir hafa lagt orð í belg í vikunni um málið og segja umræðuna einkennast af af fölskum upplýsingum.

Forstjóri Menntamálstofnunar sagði í kvöldfréttum í gær að upplýsingaóreiða einkenni umræðuna sem snýst í grunninn um kynfræðslu barna. Inn í umræðuna blandast svo iðulega Samtökin ´78 en framkvæmdastjóri samtakanna sagði í kvöldfréttum í gær síðustu daga hafa verið erfiða hinsegin samfélaginu.

Í dag kom svo sameiginleg yfirlýsing frá Stjórnarráði Íslands, Reykjavíkurborg, Sambando íslenskra sveitarfélaga, Umboðsmanni barna, Menntamálastofnun, Barnaheil, Samtökunum '78 og Heimili og skóla og Landssamtökum foreldra þar sem sagði að borið hefði á því að „villandi og oft röngum upplýsingum sé dreift um samfélagsmiðla, námsefni tekið úr samhengi og því stillt upp á vafasaman hátt.


Tengdar fréttir

Náms­efni tekið úr sam­hengi og stillt upp á villandi hátt

Mikil umræða hefur átt sér stað undanfarið varðandi hinsegin- og kynfræðslu í grunnskólum. Borið hefur á því að villandi og oft röngum upplýsingum sé dreift um samfélagsmiðla, námsefni tekið úr samhengi og því stillt upp á vafasaman hátt.

Sam­tökin '78 hafi ekkert að gera með kyn­fræðslu

Fræðslu­stýra Sam­takanna '78 segir ekki rétt sem komið hefur fram í um­ræðum um kyn­fræðslu barna og ung­linga á sam­fé­lags­miðlum síðustu daga að sam­tökin fari með kyn­fræðslu í grunn­skólum. Heitar um­ræður hafa skapast um kyn­fræðslu barna í grunn­skólum og skjá­skot úr kennslu­efni sett fram á mis­vísandi hátt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×