Handbolti

Stjörnuframmistaða í fyrsta sigrinum í Kiel í ellefu ár: „Fannst við spila frábærlega“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Elvar Örn Jónsson fagnar með samherja sínum í Melsungen og íslenska landsliðinu, Arnari Frey Arnarssyni.
Elvar Örn Jónsson fagnar með samherja sínum í Melsungen og íslenska landsliðinu, Arnari Frey Arnarssyni. getty/Swen Pförtner

Elvar Örn Jónsson átti glansleik þegar Melsungen vann óvæntan sigur á Þýskalandsmeisturum Kiel. Hann hefur byrjað tímabilið af miklum krafti eins og lið Melsungen sem virðist geta velgt bestu liðum þýsku úrvalsdeildarinnar undir uggum.

Elvar skoraði níu mörk þegar Melsungen gerði sér lítið fyrir og vann Kiel, 30-35, á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í fyrradag. Þetta var fyrsti sigur Melsungen í Kiel síðan 2012 og aðeins sá annar frá upphafi.

„Þetta var geggjaður liðssigur. Mér fannst við spila frábærlega. Þetta var mjög jafnt í fyrri hálfleik. Þeir komust aðeins fram úr okkur en við klóruðum okkur til og það var jafnt í hálfleik. Svo byrjuðum við seinni hálfleikinn hrikalega vel og náðum þessu níu marka forskoti. Svo fóru þeir að spila framarlega í vörninni og við styttum okkar sóknir. Þeir skoruðu alltaf strax og náðu hægt og rólega að minnka muninn en við náðum að halda út,“ sagði Elvar í samtali við Vísi í gær.

„Mér fannst við spila hrikalega góða vörn. Mörkin sem þeir skoruðu í fyrri hálfleik voru mörg úr seinni bylgju. Þeir eru með hrikalegar skyttur sem bombuðu á okkur af tólf metrum. Þeir hittu í fyrri hálfleik. Í byrjun seinni lokuðum við á það og þeir töpuðu boltanum. Þeir fóru í sjö á sex en við spiluðum mjög góða vörn gegn því, skoruðum auðveld mörk og byggðum upp þetta forskot.“

Aukið pláss, aukin tækifæri

Elvar lék á als oddi í leiknum í fyrradag og skoraði sem áður sagði níu mörk. Hann nýtti sér aukið pláss sem skapaðist í seinni hálfleik til hins ítrasta.

„Þetta var góður leikur,“ sagði Elvar hógvær. „Í seinni hálfleik spiluðu þeir framar og tóku eiginlega tvo úr umferð. Þá opnaðist meira pláss fyrir mig að fara einn á einn á stóru svæði. Ég reyndi að nýta mér það eins vel og ég gat.“

Elvar er á sínu þriðja tímabili hjá Melsungen.getty/Mathias Renner

Sem fyrr sagði hefur Elvar byrjað tímabilið vel og hefur skorað átján mörk í fyrstu þremur leikjum sínum með Melsungen í þýsku úrvalsdeildinni. Hann segir ekkert frábrugðið í undirbúningi sínum fyrir tímabilið. Lið Melsungen sé bara orðið betra en það var.

Sterkari á svellinu

„Þetta er liðið. Ég geri bara það sama og síðustu ár. Liðið er samstilltara og við höfum unnið þessa jöfnu leiki í ár. Í fyrra töpuðum við þeim og brotnuðum. Núna stígum við upp þegar pressan kemur,“ sagði Elvar en Melsungen er með fullt hús stiga á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar.

Melsungen fékk góðan liðsstyrk í sumar, meðal annars heljarmennið Dainis Kristopans frá Paris Saint-Germain. Lettinn hávaxni hefur, líkt og Elvar, skorað átján mörk í byrjun tímabils og gefið þrettán stoðsendingar.

Elvar hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu síðan 2018.vísir/vilhelm

„Mér fannst við vera með gott lið í fyrra en í ár erum við samstilltari. Kristopans kemur með gríðarlega mikla reynslu. Öll liðin þurfa að hugsa um hann, þannig það opnast meira fyrir hina. Svo hefur vörnin okkar batnað. Mér fannst hún mjög góð í fyrra en enn betri núna. Við fengum Ungverjann (Adrian) Sipos. Hann er gríðarlega sterkur einn á einn og flottur karakter,“ sagði Elvar.

„Mér finnst líka munur í sókninni. Í fyrra áttum við í basli með að skora mörk en núna finnst mér við alltaf vera betri og betri í sókninni og finna hvorn annan.“

Annað hlutverk í sókninni

Elvar segir að breyting hafi orðið á hlutverki hans í sóknarleik Melsungen frá síðustu tveimur tímabilum.

„Núna er ég hugsaður sem vinstri skytta og fæ að byrja árásir. Ég er ekki mikið hugsaður sem miðjumaður til að byrja með, því við erum með tvo þannig. Núna er ég meira í vinstri skyttustöðunni og get einbeitt mér að koma á fullri ferð í staðinn fyrir að hugsa of mikið,“ sagði Elvar sem er í risastóru hlutverki í varnarleik Melsungen sem endranær. „Ég er þristur, fjarki, tvisvar og fimma og spila þetta allt.“

Hlutverk Elvars í varnarleik Melsungen er stórt og mikið.getty/Swen Pförtner

Engum dylst hversu mikill metnaður er til staðar hjá Melsungen þótt árangurinn hafi ekki alltaf verið í samræmi við vonir og væntingar.

„Kannski að finna réttu leikmennina til að spila saman og vinna tæpu leikina. Svo hefur hugarfarið breyst aðeins í ár,“ sagði Elvar aðspurður hvað hafi vantað upp á hjá Melsungen síðustu ár.

Fara ekki fram úr sér

Selfyssingurinn segir að Melsungen horfi löngunaraugum til Evrópusætis.

„Eins og í fyrra var stefnan að ná í Evrópusæti. Við byrjum á því. Við reynum samt að hugsa sem mest um einn leik í einu; þetta gamla góða. Við viljum ekki fara fram úr okkur þótt við höfum byrjað rosalega vel.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×