Handbolti

Hita upp fyrir HM á móti með heimsmeisturunum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
5942D7486836E8BFDAAF941445969AB94EBF14ED9B76567E09FF3B181216F9FB_713x0

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mun hita upp fyrir heimsmeistaramótið sem hefst í lok janúar á æfingamóti með Póllandi, Angóla og ríkjandi heimsmeisturum Noregs.

HM kvenna í handbolta hefst þann 29. nóvember næstkomandi og fer það fram í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Íslenska liðinu var úthlutað boðssæti (e. wild card) og mun leika í riðli með Frakklandi, Slóveníu og Angóla.

Angóla er einmitt eitt þeirra liða sem mun etja kappi við íslensku stelpurnar á æfingamóti sem fram fer í Noregi helgina áður en mótið hefst, nánar tiltekið 23.-26. nóvember. Ásamt Íslandi og Angóla munu Pólland og ríkjandi heimsmeistarar Noregs, undir stjórn Þóris Hergeirssonar, mæta til leiks.

Til stóð að Ísland myndi leika tvo leiki gegn B-liði Noregs í aðdraganda heimsmeistaramótsins, en nú fær liðið enn erfiðara verkefni áður en mótið hefst. Þá mun liðið einnig leika tvo leiki í undankeppni EM í október áður en HM hefst, annars vegar gegn Lúxemborg, og hins vegar gegn Færeyjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×