Körfubolti

Konstantin­ova frá deildar­meisturunum til Ís­lands­meistaranna

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Karina Konstantinova er genginn í raðir Vals.
Karina Konstantinova er genginn í raðir Vals. Vísir/Hulda Margrét

Íslandsmeistarar Vals hafa samið við búlgörsku landsliðskonuna Karinu Konstantinovu um að leika með liðinu á komandi tímabili í Subway-deild kvenna í körfubolta. Konstantinova kemur til liðsins frá deildarmeisturum Keflavíkur.

Körfuknattleiksdeild Vals greindi frá tíðindunum á samfélagsmiðlum sínum í gær, en hjá Keflavík skilaði Konstantinova 11,6 stigum, 6 fráköstum og 5,2 stoðsendingum að meðaltali í leik á síðasta tímabili.

Konstantinova er 23 ára gömul og getur bæði leyst stöðu leikstjórnanda og bakvarðar. Á ferlinum hefur hún leikið með Beroe í heimalandinu, Niki Lefkadas í Grikklandi, Plasencia á Spáni og San Salvatore á Ítalíu áður en hún gekk í raðir Keflavíkur fyrir síðasta tímabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×