Innlent

Tveir fluttir á slysa­deild eftir bílveltu við Krýsuvíkurveg

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Bíllinn er mjög illa farinn eftir veltuna.
Bíllinn er mjög illa farinn eftir veltuna. vísir/aðsend

Tveir voru fluttir á slysadeild eftir bílslys við Krýsuvíkurveg upp úr klukkan sex í dag.

Bíll valt út af veginum við afleggjarann að Bláfjallavegi.

Varðstjóri hjá slökkvilið staðfestir þetta í samtali við fréttastofu en frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu. Ljóst er þó að um alvarlegt slys er að ræða. 

Mikill viðbúnaður er á svæðinu.vísir/aðsend


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×