Golf

Kærastan fyrrverandi vill 3,9 milljarða frá Tiger Woods

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
 Tiger Woods með Ericu Herman á Forsetabikarnum árið 2019 þegar allt lék í lyndi.
 Tiger Woods með Ericu Herman á Forsetabikarnum árið 2019 þegar allt lék í lyndi. Getty/Warren Little

Fyrrverandi kærasta Tiger Woods hefur höfðað skaðabótamál gegn bandaríska kylfingnum og nú hafa bandarískir fjölmiðlar grafið upp hvað hún vill fá í peningum.

New York Post hefur nefnilega komist yfir gögnin í málsókn kærustunnar fyrrverandi gegn fimmtánföldum risamótsmeistara.

Tiger og Erica Herman voru par frá 2015 til 2023 en samband þeirra endaði mjög illa.

Herman segir lögfræðing Tiger hafa platað sig út úr húsinu undir þeim formerkjum að hún og Woods væru að fara saman í frí. Þegar hún kom á flugvöllinn þá fékk hún að vita frá lögfræðingnum að sambandi þeirra væri lokið og hún mætti ekki snúa aftur í húsið.

Herman hefur reynt að fá trúnaðarsamningi þeirra rift en hún heldur því fram að Tiger noti hann gegn henni.

Herman höfðar málið gegn bæði Tiger Woods sjálfum sem og gegn sjóðnum sem á 54 milljón dollara húsið hans á Florída.

Herman sækist eftir skaðabótum fyrir meðal annars ótilgreinda kynferðislega misnotkun af hálfu Tigers.

Hún vann á veitingastað í eigu Tigers þegar þau kynntust og hélt því áfram fyrstu árin í sambandi þeirra.

Woods segir samband þeirra ekki hafa hafist fyrr en árið 2017 og að hún hafi flutt inn til hans í ágúst það sama ár. Hún segir að sambandið hafi byrjað árið 2015.

Trúnaðasamningurinn umdeildi er frá árinu 2017 en Herman segir Woods hafa hótað því að reka hana ef hún skrifaði ekki undir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×