Þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga þáverandi eiginkonu í sumarbústað Kristinn Haukur Guðnason skrifar 14. júlí 2023 13:30 Dómari sýknaði í einum ákærulið en sakfelldi í tveimur. Vísir/Vilhelm Maður var í dag dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir nauðganir og stórfelld brot í nánu sambandi. Brotin voru framin gegn fyrrverandi eiginkonu hans í sumarbústað.
Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjaness í dag og voru ákæruliðirnir þrír. Í fyrsta lagi að hann hafi haft samræði og endaþarmsmök við þáverandi eiginkonu sína án samþykkis en hún hafi ekki getað spornað við verknaðinum sökum svefndrunga og ölvunar. Hlaut hún áverka og punktablæðingar við bæði sköp og endaþarm. Í öðru lagi að hann hafi beitt aflsmunum sínum ítrekað til að hafa samræði við hana í sumarbústað. Segir í dómnum að „…þrátt fyrir að hún reyndi að ýta ákærða frá sér og bæði hann um að hætta, en ákærði hafði samræði við hana í sófa í stofunni og stuttu síðar aftur inn í svefnherbergi og er ákærði hætti í stutta stund náði A að flýja inn í eldhús en ákærði elti hana og hélt aftur á henni inn í svefnherbergi þar sem hann hélt áfram að hafa við hana samræði, allt með þeim afleiðingum að A hlaut eymsli á hálsi og herðum og mar á ytri kynfærum.“ Í þriðja lagi að með þessari háttsemi hafi hann skapað viðvarandi ógnarástand í sambandinu sem olli henni andlegum þjáningum, kúgun og vanmætti sem kæmu niður á heilsu hennar. Afmælisdagurinn Eiginkonan lagði fram kæru þann 22. desember á lögreglustöðinni við Hverfisgötu og lýsti atburðarásinni frá sinni hlið. Hið fyrst nefnda tilfelli hafi gerst á afmælisdegi konunnar. Fóru þau saman í bæinn og hún drakk þar til hún var mjög ölvuð. „Þegar heim var komið hafi brotaþoli farið í sturtu en kvaðst lítið annað muna fyrr en hún vaknar daginn eftir og finnur fyrir óþægindum í endaþarmi. Hafi ákærði þá verið „sturlaður“ af reiði vegna ummæla sem brotaþoli átti að hafa viðhaft um hann um nóttina. Hafi ákærði meðal annars brotið vegg á heimili hennar,“ segir í dóminum. Fékk hún vinkonur til að skutla sér á Bjarkarhlíð og þaðan í kvennaathvarfið ásamt börnum sínum. Tveimur dögum síðar leitaði hún á bráðamóttökuna. Þrjár nauðganir í sumarbústað Tilfellin í sumarbústaðnum gerðust þegar þau voru þar í vikulangri fjölskylduferð með börnunum. Eftir atlot í heitum potti og í sófa skipti maðurinn skyndilega skapi, snöggreiddist og nauðgaði henni um leggöng. Konan leitaði á bráðamóttöku eftir brotin. „Lýsti brotaþoli því að hún hafi legið þannig á sófanum að rass hennar hafi verið á sófabrúninni en höfuð hennar kramið, eða í nokkurs konar vinkli, við sófabakið. Hafi hún af þeim sökum átt erfitt með að anda á meðan á þessu hafi staðið,“ segir í dóminum. Hafði hanni í kjölfarið sáðlát á gólfið. Gekk svo inn í herbergið þar sem sonurinn lá og færði yfir í herbergi dótturinnar. Fór svo upp í rúm til konunnar og reyndi að halda áfram en hún greip í geirvörtu hans til að stöðva hann. Nauðgaði hann henni þá aftur. Fór hún þá fram í eldhús þangað sem maðurinn kom og nauðgaði henni í þriðja skiptið. Þegar maðurinn ætlaði að nauðga henni í fjórða skiptið um nóttina sagði hún við hann að hann gerði móður sína ekki stolta með þessu og þá var eins og hann hafi áttað sig á aðstæðunum. Hætti hann þá ofbeldinu og konan lagðist til svefns. Um morguninn leitaði konan til Kvennaathvarfsins og á neyðarmóttöku. Sakfelldur i tveimur ákæruliðum Maðurinn neitaði sök og sagði þau hafa átt venjulegt kynlíf saman í bæði þessi skipti. Hann hafi verið góður eiginmaður og faðir í átta ára sambandi með konunni. Hann hafi ekki fengið að sjá börnin sín í þrjú ár og hafi verið sagt upp í vinnunni vegna þessa máls. Vitni, meðal annars hjúkrunarfræðingur á neyðarmóttöku og sálfræðingur, vitnuðu til um að frásögn konunnar væri skýr. Þá lágu einnig fyrir skýrslur og vottorð, meðal annars frá Kvennaathvarfinu og lækni. Var maðurinn sýknaður af fyrsta ákæruliðnum en sakfelldur fyrir seinni tvo. Eins og áður segir er maðurinn dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar. Þá þarf hann að greiða brotaþola 1,5 milljón krónur í bætur og rúmlega 3 milljónir í lögfræði og málskostnað.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Fleiri fréttir Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásynd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Sjá meira