Innherji

Krónan styrkist sam­hliða því að hægt hefur á gjald­eyris­kaupum líf­eyris­sjóða

Hörður Ægisson skrifar
Gengi krónunnar hefur styrkst um liðlega sex prósent gagnvart Bandaríkjadal frá áramótum.
Gengi krónunnar hefur styrkst um liðlega sex prósent gagnvart Bandaríkjadal frá áramótum. Vísir/Getty

Heldur hefur hægt á gjaldeyriskaupum lífeyrissjóða á fyrstu mánuðum ársins eftir verulegt umfang þeirra á seinni árshelmingi 2022. Miklar verðhækkanir á erlendum eignamörkuðum hefur vegið á móti gengisstyrkingu krónunnar og því hefur hlutfall erlendra eigna lífeyrissjóðanna aukist nokkuð frá áramótum.


Tengdar fréttir

Seðla­banka­stjóri segir þörf á betri upp­lýsingum um gjald­eyris­markaðinn

Unnið er að því hjá Seðlabankanum að reyna afla ítarlegri og betri upplýsinga um heildarviðskipti á gjaldeyrismarkaði, að sögn seðlabankastjóra, og viðurkennir að bankinn hafi „ekki nægjanlega“ góða yfirsýn yfir þann markað. Framkvæmdastjóri lífeyrissjóðs líkir gjaldeyrispörun innan viðskiptabankanna við „stærstu skuggabankastarfsemi landsins“ og segir umfang lífeyrissjóða á gjaldeyrismarkaði minna en af er látið.

Seðla­banka­stjóri: Verð­bólgan gæti hjaðnað hraðar en spár gera ráð fyrir

Vísbendingar eru um að verðbólgan kunni að ganga hraðar niður en hagspár gera ráð fyrir, að sögn seðlabankastjóra, og vísar þar meðal annars til þess að hrávöruverðshækkanir erlendis eru að koma til baka auk þess sem væntingar eru um að gengi krónunnar eigi eftir að styrkjast. Hann segir til mikils að vinna að stigin verði frekari trúverðug skref í ríkisfjármálum til að ná niður verðbólguvæntingum á skuldabréfamarkaði sem muni þá um leið lækka ávöxtunarkröfu langra ríkisbréfa.

Fjár­festar auka stöðu­töku sína með krónunni um tugi milljarða

Eftir að gengi krónunnar hafði veikst stöðugt á seinni árshelmingi 2022 eru merki um að væntingar fyrirtækja og fjárfesta hafi breyst að nýju sem endurspeglast í aukinni framvirkri gjaldeyrisstöðu viðskiptabankanna með krónunni í byrjun þessa árs. Það kann að hafa átt sinn þátt í því krónan hefur rétt úr kútnum að undanförnu og þá voru gjaldeyriskaup lífeyrissjóða í liðnum mánuði með minnsta móti um langt skeið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×