Yfirmaður fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka lætur af störfum Hörður Ægisson skrifar 2. júlí 2023 23:34 Atli Rafn Björnsson hefur verið forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka frá því í ársbyrjun 2019 en Ellert Hlöðversson, sem hefur stýrt verðbréfamiðlun bankans í tæplega eitt ár, mun núna taka við hans starfi. Atli Rafn Björnsson, sem hefur stýrt fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka frá árinu 2019, hefur látið af störfum en hann er þriðji stjórnandinn sem hættir eftir að félagið samþykkti að greiða tæplega 1,2 milljarða sektargreiðslu vegna brota á lögum og innri reglum sínum við sölu á hlutum í sjálfum sér í útboði bankans í fyrra.
Samkvæmt upplýsingum Innherja mun Ellert Hlöðversson, sem hefur verið yfir verðbréfamiðlun Íslandsbanka frá því síðasta haust, taka núna við starfi Atla Rafns sem forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar. Áður starfaði Ellert um margra ára skeið sem verkefnastjóri í fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka þar sem hann leiddi útboð og skráningu fjölda félaga í Kauphöllinni, meðal annars frumútboð Íslandsbanka um sumarið 2021. Fyrirtækjaráðgjöf og verðbréfamiðlun Íslandsbanka voru á meðal umsjónaraðila við sölu á 22,5 prósenta hlut ríkisins í bankanum í marsmánuði á liðnu ári. Samkvæmt ítarlegri sátt Íslandsbanka við fjármálaeftirlit Seðlabankans, sem birt snemma síðasta mánudagsmorgun, voru talin upp fjölmörg atriði þar sem bankinn var talinn hafa brotið lög og innri reglur sínar við framkvæmd útboðsins. Þannig hafi hann hvorki framkvæmt né skjalfest greiningu á hagsmunaárekstrum í tengslum við verkefni sitt við söluferlið og sömuleiðis ekki gert allar viðeigandi ráðstafanir til að greina og koma í veg fyrir eða takast á við hagsmunaárekstra vegna þátttöku starfsmanna. Síðastliðinn miðvikudag var tilkynnt um það að samið hefði verið um starfslok Birnu Einarsdóttur sem bankastjóra og var Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri Íslandsbanka frá árinu 2011, samhliða því ráðinn sem nýr bankastjóri. Þremur dögum síðar var greint frá því að Ásmundur Tryggvason, framkvæmdastjóri fyrirtækja og fjárfesta síðustu ár, hefði sömuleiðis látið af störfum en við hans starfi tekur Kristín Hrönn Guðmundsdóttir en hún hefur verið forstöðumaður fjármála, reksturs og stefnumótunar á því sviði sem hún núna tekur við. Brotthvarf þeirra kemur eftir verulegan þrýsting úr röðum ráðherra ríkisstjórnarinnar sem sögðu stjórnendur bankans ekki njóta trausts og þeir þyrftu að axla ábyrgð á brotum bankans við söluferlið. Bankasýslan, sem heldur utan um 42,5 prósenta hlut ríkisins í bankanum, fór sömuleiðis fram á hluthafafund þar sem stjórn og stjórnendur bankans geri grein fyrir málinu og þeim ráðstöfunum sem gripið verður til í því skyni að endurvekja traust. Sá fundur fer fram 28. júlí næstkomandi og þar stendur einnig til halda kosningu til stjórnar bankans. Þá var samrunaviðræðum Kviku banka og Íslandsbanka, sem höfðu staðið yfir í nærri fimm mánuði, slitið síðasta fimmtudag. Taldi stjórn Kviku ekki lengur forsendur til þess að halda áfram þeim viðræðum. Vísaði hún þar til „atburða síðustu daga“ og til væntanlegs hluthafafundar og stjórnarkjörs. „Þó er ljóst að ávinningur af samruna félaganna gæti orðið verulegur og hefur stjórn Kviku lýst yfir vilja sínum til þess að hefja viðræður að nýju ef forsendur skapast,“ sagði í tilkynningunni sem Kvika sendi frá sér.
Salan á Íslandsbanka Vistaskipti Íslandsbanki Íslenskir bankar Tengdar fréttir Ásmundur Tryggvason hættur hjá Íslandsbanka Ásmundur Tryggvason, framkvæmdastjóri á sviði fyrirtækja og fjárfesta hjá Íslandsbanka, hefur ákveðið að stíga til hliðar. Kristín Hrönn Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í hans stað. 1. júlí 2023 18:59 Mest lesið Verkfallsaðgerðir í maí kostuðu Eimskip um 90 milljónir króna Innherjamolar Gildi selur í stóru bönkunum fyrir marga milljarða á skömmum tíma Innherjamolar „Staðan er þung“ hjá Kaldvík eftir erfiðan vetur og lækka verðmatið frekar Innherji Fjárfestingafélagið Kjölur stækkar talsvert við stöðuna í Íslandsbanka Innherjamolar Skynsöm beiting nýs regluverks skiptir sköpum fyrir áframhaldandi erlendri fjárfestingu Umræðan Krónan styrktist að nýju með milljarða kaupum erlendra sjóða í Íslandsbanka Innherji Útlit fyrir að arðsemi Arion verði vel yfir markmiði með auknum vaxtatekjum Innherjamolar Skák og mát í Íran Umræðan Afkoman yfir væntingum en horfur „ekki góðar“ vegna hærri eldsneytiskostnaðar Innherji Líklegt að markaðir fari að leita í jafnvægi eftir mjög hagfelldar aðstæður Innherji Fleiri fréttir Verkfallsaðgerðir í maí kostuðu Eimskip um 90 milljónir króna Gildi selur í stóru bönkunum fyrir marga milljarða á skömmum tíma „Staðan er þung“ hjá Kaldvík eftir erfiðan vetur og lækka verðmatið frekar Skynsöm beiting nýs regluverks skiptir sköpum fyrir áframhaldandi erlendri fjárfestingu Vonast eftir aukinni veltu með innkomu yfir þrjátíu nýrra erlendra sjóða Útlit fyrir að arðsemi Arion verði vel yfir markmiði með auknum vaxtatekjum Líklegt að markaðir fari að leita í jafnvægi eftir mjög hagfelldar aðstæður Fyrirtæki farin að „fresta öllum ákvörðunum sem hægt er að fresta“ Þátttakan í útboði Alvotech fjármögnuð með láni frá breskum vogunarsjóði Stoðir selja í Arion banka fyrir meira en hálfan milljarð Verðlagning íslenskra hlutabréfa er enn hóflegri en vestanhafs Vatnaskil gætu verið í kortunum og spá því að vaxtahækkunum sé lokið í bili Minni fjármálafyrirtæki draga saman seglin við erfiðar markaðsaðstæður Blekkingin um lægri húsnæðiskostnað með evru Séreignarsjóðir skilað talsvert lakari ávöxtun þrátt fyrir meiri áhættu Stopp á sjálfvirknivæðingu vitleysu Umfang skortsölu jókst verulega eftir áfallið hjá Oculis Ardian veðjar á norræn gagnaver með mörg hundruð milljarða fjárfestingu Afkoma Haga vel yfir væntingum vegna hækkana á olíuverði Að brúa bil á milli kaupanda og seljanda Segjum NEI fyrir kynslóðir framtíðarinnar Fjárfestar seldu í hlutabréfasjóðum fyrir meira en þrjá milljarða „Nokkurn veginn allt“ fallið með íslenskum sjávarútvegi síðustu misseri Varist Pútín þegar straumurinn snýst gegn honum Fjárfestar bæta hratt í framvirku stöðuna til að verjast gengisstyrkingu Þriðja verðbólgumælingin í röð sem sýnir ekki hækkanir á breiðum grunni Kári bætir verulega við stöðuna í Stoðum með kaupum fyrir nærri milljarð Þórunn verður nýr aðalhagfræðingur Samkeppniseftirlitsins Telja ekkert annað í kortunum en að verð sjávarafurða hækki enn meira Arðsemi íslenskra banka umfram áhættulausa vexti sú lægsta á Norðurlöndunum Sjá meira
Ásmundur Tryggvason hættur hjá Íslandsbanka Ásmundur Tryggvason, framkvæmdastjóri á sviði fyrirtækja og fjárfesta hjá Íslandsbanka, hefur ákveðið að stíga til hliðar. Kristín Hrönn Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í hans stað. 1. júlí 2023 18:59