Innlent

Segir Hval munu aðstoða þá sem vilja leita réttar síns

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., við brottför hvalbátanna úr Reykjavíkurhöfn í dag.
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., við brottför hvalbátanna úr Reykjavíkurhöfn í dag. Egill Aðalsteinsson

Hvalur hf. mun aðstoða „eftir föngum“ þá sem fara á mis við störf hjá fyrirtækinu vegna ákvörðunar ráðherra um að setja hvalveiðitímabilið á bið, ef þeir ákveða að leita réttar síns gagnvart stjórnvöldum. 

Þetta kemur fram í skilaboðum sem Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf., sendi á þá sem áttu að hefja störf í vikunni. Í skilaboðunum segir að forsendur ráðninga séu brostnar og að ekki verði af þeim.

„Eins og þið hafið sjálfsagt tekið eftir hefur matvælaráðherra þann 20. júní 2023, upp á sitt einsdæmi og fyrirvaralaust, takmarkað veiðitímabil langreyða þannig að þær geta ekki hafist fyrr en fyrsta september 2023, samkvæmt því sem segir í ákvæði til bráðabirgða við reglugerð nr. 163/1973 um hvalveiðar, eins og henni hefur nú verið breytt af hálfu matvælaráðherra,“ segir í skilboðunum sem Vísir hefur undir höndum.

Kristján segist harma þá stöðu sem upp sé komin, sem sé fordæmalaus í sögu félagsins.

Þá segir: 

„Komi til þess að einstakir aðilar vilji leita réttar síns gagnvart stjórnvöldum vegna þessa, mun Hvalur hf. að sjálfsögðu aðstoða eftir föngum.“

Greint hefur verið frá því að á annað hundrað einstaklingar hafi verið búnir að ráða sig á vertíð hjá Hval.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×