Handbolti

Norska ofur­liðið fær Meistara­deildar­sæti en Óðinn og fé­lagar sitja eftir

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Janus Daði Smárason og Sigvaldi Björn Guðjónsson munu leika með Kolstad í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili, en Óðinn Þór Ríkharðsson fer aftur í Evrópudeildina.
Janus Daði Smárason og Sigvaldi Björn Guðjónsson munu leika með Kolstad í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili, en Óðinn Þór Ríkharðsson fer aftur í Evrópudeildina. Kolstad/Kadetten

Handknattleikssamband Evrópu, EHF, tilkynnti fyrr í dag hvaða sex lið það eru sem fá stöðuhækkun úr Evrópudeildinni upp í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Norska ofurliðið Kolstad, með þá Janus Daða Smárason og Sigvalda Björn Guðjónsson innanborðs, er meðal þeirra liða sem fær sæti.

Alls voru tíu lið sem sóttu um að fá sæti í Meistaradeildinni frekar en Evrópudeildinni. Þar á meðal voru  Íslendingaliðin Kolstad og Kadetten Schaffhausen, en einnig HC Zagreb (Króatía), Álaborg (Danmörk), Montpellier (Frakkland), Pick Szeged (Ungverjaland), Wisla Plock (Pólland), Sporting CP (Portúgal), Dinamo Bucuresti (Rúmenía) og IFK Kristianstad (Svíþjóð).

Kolstad, Zagreb, Álaborg, Montpellier, Pick Szeged og Wisla Plock fengu öll sæti í Meistaradeild Evrópu, en hin fjögur liðin þurfa að sætta sig við að spila í Evrópudeildinni.

Alls verða því fjögur Íslendingalið í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon leika með nýkrýndum meisturum í Magdeburg, Bjarki Már Elísson leikur með ungverska liðinu Telekom Veszprém, Haukur Þrastarson leikur með pólska liðinu Kielce sem mátti þola tap gegn Magdeburg í úrslitaleik keppninnar um liðna helgi og þeir Janus og Sigvaldi leika með Kolstad eins og áður segir.

Hér fyrir neðan má sjá tilkynningu frá EHF þar sem öll 16 liðin sem taka þátt eru talin upp.

Eins og undanfarin ár eru 16 lið sem munu taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili og verður þeim skipt upp í tvo átta liða riðla. Dregið verður í riðlana að viku liðinni og verður greint frá því hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×