Innlent

Fram­kvæmda­stjóri Úr­vinnslu­sjóðs hættir

Árni Sæberg skrifar
Ólafur Kjartansson hefur helgað síðustu tvo áratugi endurvinnslu.
Ólafur Kjartansson hefur helgað síðustu tvo áratugi endurvinnslu. Úrvinnslusjóður/Vísir/Vilhelm

Stjórn Úrvinnslusjóðs og Ólafur Kjartansson hafa komist að samkomulagi um að hann ljúki störfum sem framkvæmdastjóri sjóðsins frá og með 1. júlí. Í tilkynningu segir að sjóðurinn standi á tímamótum.

„Um þessar mundir stendur Úrvinnslusjóður á tímamótum. Hlutverk Úrvinnslusjóðs hefur og er að taka miklum breytingum samfara innleiðingu hringrásarhagkerfisins og hefur mikilvæg reynsla myndast síðustu ár og mánuði,“ svo hefst tilkynning á vef Úrvinnslusjóðs, þess efnis að framkvæmdastjóri sjóðsins frá stofnun sé að láta af störfum.

Þar segir að til þess að sjóðurinn geti sinnt sínu hlutverki með sem bestum hætti sé ljóst að starfsemin þurfi að vera opnari, framsýnni og kvikari. Umbreyting sé óhjákvæmileg og þó nú þegar sé unnið að breytingum undir stjórn Ólafs Kjartanssonar framkvæmdastjóra sé bæði honum og stjórn Úrvinnslusjóðs ljóst að mikið verk er enn óunnið.

„Uppbygging og rekstur Úrvinnslusjóðs hefur hvílt á herðum Ólafs í rúm tuttugu ár, þ.e. frá stofnun sjóðsins þann 1. janúar 2003. Ólafur hefur reynst Úrvinnslusjóði afar vel, ekki síst við uppbyggingu starfseminnar í samræmi við hlutverk hans. Nú þykir hins vegar rétti tíminn til breytinga og hafa stjórn Úrvinnslusjóðs og Ólafur komist að samkomulagi um að hann ljúki störfum sem framkvæmdastjóri sjóðsins frá og með 1. júlí 2023 að telja,“ segir í tilkynningu.

Þá segir að að leiðarlokum þakki stjórn Úrvinnslusjóðs Ólafi Kjartanssyni gott og óeigingjarnt starf í þágu sjóðsins og óski honum velfarnaðar í framtíðinni.

Starf framkvæmdastjóra verður auglýst á næstu dögum. Margrét Kjartansdóttir lögfræðingur mun gegna hlutverki staðgengils framkvæmdastjóra frá 1. júlí og þar til nýr framkvæmdastjóri hefur störf.

Hættir þegar sjóðurinn er hvað mest milli tannana á fólki

Úrvinnslusjóð hefur borið meira á góma fólks undanfarnar vikur en venjulega. Upp komst um sannkallað endurvinnsluhneyksli þegar Heimildin greindi frá því að pappafernur, sem almenningur hefur almennt skolað og flokkað samviskusamlega, eru ekki endurnýttar heldur nýttar til þess að knýja sementsverksmiðjur á meginlandinu.

Úrvinnslusjóði er ætlað að hvetja til endurvinnslu úrgangs. Hann sýslar með svonefnt úrvinnslugjald sem er greitt af öllum vörum í plast- og pappírsumbúðum sem eru fluttar inn til landsins.

Úrvinnslugjaldið er nýtt til að greiða fyrir meðhöndlun og endurnýtingu varanna eða umbúðanna eftir að þær hafa þjónað upphaflegum tilgangi sínum. Þannig fá fyrirtæki sem endurvinna plast til dæmis ákveðna upphæð fyrir hvert kíló sem er endurunnið en lægri upphæð sé plastið brennt til orkuframleiðslu.

Ljóst er að úrvinnslugjaldinu hefur ekki verið úthlutað sem skyldi, enda hefur sjóðurinn greitt háar fjárhæðir fyrir endurvinnslu ferna, sem voru alls ekki endurunnar.


Tengdar fréttir

Ætlar að krefja endur­vinnslu­fyrir­tækin um endur­greiðslu

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og auðlindaráðherra hyggst krefja íslensk endurvinnslufyrirtæki um endurgreiðslu á fjármunum sem greiddir voru úr Úrvinnslusjóði vegna endurvinnslu á fernum sem voru í raun og veru brenndar. Um er að ræða tugi milljóna króna sem greiddar voru til endurvinnslufyrirtækjanna.

Neytendur ekki blekktir þó fernur hafi verið brenndar

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur kallað forsvarsmenn Sorpu og Úrvinnslusjóð á fund til að skýra þær fréttir sem bárust í dag um að fernur sem neytendum hafi verið talin trú um að yrðu endurnýttar væru í raun brenndar. Hann lítur málið alvarlegum augum. Samskipta- og þróunarstjóri Sorpu segir of langt gengið að tala um blekkingar í þessu samhengi.

Telur að Ólafur hafi þegið ofgreidd laun í góðri trú

Hæstaréttarlögmaður telur að framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs hafi verið í góðri trú þegar hann þáði mánaðarlega þóknun í sjö ár fyrir störf í stýrinefnd sem lögð hafði verið niður. Þá sé það langsótt að varpa ábyrgð á mistökum Fjársýslu ríkisins yfir á stjórn og framkvæmdastjóra.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×