Golf

Methafarnir Fowler og Schauffele með tveggja högga forystu

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Þeir Rickie Fowler og Xander Schauffele spiluðu frábært golf á fyrsta degi Opna bandaríska.
Þeir Rickie Fowler og Xander Schauffele spiluðu frábært golf á fyrsta degi Opna bandaríska. Keyur Khamar/PGA TOUR via Getty Images

Þeir Ricky Fowler og Xander Schauffele eru með tveggja högga forystu eftir fyrsta hring Opna bandaríska risamótsins í golfi, US Open.

Báðir kláruðu þeir holurnar 18 á aðein 62 höggum, átta höggum undir pari. Fowler varð fyrsti kylfingurinn í 128 ára sögu mótsins til að klára völlinn á færri en 63 höggum og aðein 22 mínútum síðar gerði Schauffele slíkt hið sama.

Það var því ólíklegt að nokkur maður myndi stela toppsætinu á fyrsta hring mótsins, þrátt fyrir að margir af bestu kylfingum heims ættu eftir að ljúka sér af þegar Fowler og Schauffele höfðu lokið við sína hringi.

Þeir voru þó nokkrir sem gerðu atlögu að því. Bandaríkjamennirnir Dustin Johnson og Wyndham Clark spiluðu báðir á sex höggum undir pari og þeir Brian Harman og Rory McIlroy kláruðu báðir á fimm höggum undir pari.

Hins vegar þurfa menn á borð við Jon Rahm, Phil Mickelson og Viktor Hovland að halda vel á spilunum um helgina til að ná efstu mönnum. Þremenningarnir kláruðu allir á einu höggi undir pari í nótt og eru því, ásamt tíu öðrum kylfingum, jafnir í 25. sæti. Stöðuna í heild sinni má sjá á heimasíðu Opna bandaríska með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×