Golf

Risa­­mót í skugga sam­runa: Ringulreið og ruglingur fyrir þriðja risa­­mót tíma­bilsins

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Rory McIlroy og Brooks Koepka eru í sama ráshópi þegar Opna bandaríska risamótið í golfi hefst í dag.
Rory McIlroy og Brooks Koepka eru í sama ráshópi þegar Opna bandaríska risamótið í golfi hefst í dag. Patrick Smith/Getty Images

Þriðja risamót tímabilsins fer af stað í dag þegar Opna bandaríska, US Open, fer fram á The Los Angeles Country Club's North Course-vellinum í Los Angeles um helgina. Mótið er raunar nú þegar hafið, en það er ekki mótið sjálft sem hefur stolið fyrirsögnum golfheimsins undanfarna daga, heldur óvæntur samruni PGA- og LIV-mótaraðanna.

Samruni PGA og LIV, og raunar einnig Evrópumótaraðarinnar DP World Tour, kom eins og þruma úr heiðskíru lofti í síðustu viku. Talsmenn PGA og kylfingar sem héldu tryggð við mótaröðina voru háværustu gagnrýnendur LIV-mótaraðarinnar sem fjármögnuð er af opinberum fjárfestingarsjóði Sádi-Arabíu, PIF. Opna bandaríska er fyrsta risamótið eftir samrunann.

Kylfingar sem héldu tryggð við PGA neituðu gylliboðum, en horfðu á eftir félögum og keppinautum sækja aurinn úr að því er virðist botnlausum sádiarabískum vösum. Að fylgjast með tryggum PGA-kylfingum etja kappi við þá sem létu freistast verður því í versta falli áhugavert og í besta falli eitthvað miklu meira en það.

Mikil reiði meðal PGA-kylfinga

Flestir þeir kylfingar sem héldu tryggð við hina rótgrónu PGA-mótaröð ráku upp stór augu þegar þeir vöknuðu og lásu yfir fréttir dagsins þriðjudagsmorguninn 6. júní síðastliðinn. PGA og LIV höfðu þá sent frá sér sameiginlega tilkynningu þess efnis að mótaraðirnar væru á leið undir sömu sæng en enginn hafði sagt kylfingunum frá yfirvofandi samruna. Svo flatt komu fréttirnar upp á kylfinga og aðra í golfheiminum að öldungadeild Bandaríkjaþings ætlar sér að rannsaka samrunann.

Í kjölfarið fundaði Jay Monahan, yfirmaður PGA, með mörgum af fremstu kylfingum mótaraðarinnar og tók fúkyrðunum eins og ekkert væri. Margir kölluðu eftir afsögn Monahans, en hann lét það þó ekki á sig fá. Monahan hefur reyndar nú stigið tímabundið til hliðar á meðan hann jafnar sig á veikindum, hvað svo sem það þýðir um framtíð hans hjá PGA.

PGA-menn klóra sér í hausnum á meðan LIV-arar hlæja

Margir af fremstu kylfingum heims hafa tjáð sig um samrunann eftir að hann var kynntur fyrir almenningi. Kylfingar á borð við Rory McIlroy, Jon Rahm og Matt Fitzpatrick héldu tryggð við gamla góða PGA og skilja lítið í því sem er í gangi.

Spánverjinn Jon Rahm segist upplifa sig svikinn og Matt Fitzpatrick segir að enginn viti raunverulega hvað sé í gangi nema fjórir menn í heiminum. Rory McIlroy hafði reyndar orð á því að þegar heildarmyndin væri skoðuð væri samruninn líklega góður fyrir golfíþróttina í heild. Hann bætti þó við að hann hataði enn LIV og það sem mótaröðin stendur fyrir.

Þeir kylfingar sem færðu sig yfir til LIV eru þó öllu kátari með samrunann. Brooks Koepka er meðal þeirra og hann virðist njóta ruglingsins og segist aldrei spila betur en þegar hlutirnir eru í algjörri ringulreið.

„Það verður allt hægara og ég get einbeitt mér betur. Ég þarf að einbeita mér á meðan allir aðrir eru að díla við ringulreiðina og hugsa um aðra hluti,“ sagði Koepka í viðtali á dögunum.

Annar sem virtist hafa gaman af fréttunum var hinn litríki Phil Mickelson. Talið er að Mickelson hafi þénað 200 milljónir bandaríkjadala fyrir að skrifa undir hjá LIV, en það samsvarar um 27,7 milljörðum króna.

McIlroy og Koepka eigast við

En þá að mótinu sjálfu. Eins og áður segir er Opna bandaríska-risamótið nú þegar hafið, en fyrstu menn fóru af stað klukkan 06:45 að staðartíma, eða klukkan 13:45 á íslenskum tíma. Stærstu nöfnin fá þó að sofa aðeins lengur.

Þá vill svo skemmtilega til að áðurnefndir Brooks Koepka og Rory McIlroy, ásamt Japananum Hideki Matsuyama, verða saman í ráshóp og leggja af stað af fyrsta teig rétt fyrir níu í kvöld. Hvort það sé viljandi gert til að reyna að skapa gott sjónvarp og krassandi fyrirsagnir eftir hringinn verður þó að koma í ljós.

Sama hvort ráshóparnir hafi verið settir saman með það í huga að búa til fyrirsagnir eða ekki má búast við hörkukeppni, og þá kannski sérstaklega milli McIlroy og Koepka. Þegar veðbankar eru skoðaðir má sjá að Norður-Írinn McIlroy er talinn fjórði líklegastur til að vinna mótið, en Koepka situr í þriðja sæti á þeim lista.

Áðurnefndur John Rahm er næstlíklegastur og efsti maður heimslistans, Scottie Scheffler, er talinn líklegastur til að fagna sigri á þessu þriðja risamóti tímabilsins, og því fyrsta eftir að samruni PGA og LIV var kynntur til leiks.


Tengdar fréttir

Rahm segir kylfinga svikna en Koepka nýtur ringul­reiðarinnar

Færustu kylfingar heims virðast kunna misvel við samruna PGA- og LIV-mótaraðarinnar í golfi. Sumir segjast ekki skilja hvað er í gangi, aðrir líkja þessu við að vera stunginn í bakið á meðan enn aðrir njóta ringulreiðarinnar í botn.

Öldunga­deild Banda­ríkja­þings rann­sakar sam­runa PGA og LIV

Samruni PGA- og LIV-mótaraðanna í golfi kom eins og þruma úr heiðskýru lofti fyrir sléttri viku síðan og ráku margir upp stór augu þegar fréttir af samrunanum bárust. Nú hefur öldungadeild Bandaríkjaþings blandað sér í málið og ætlar sér að rannsaka samrunann.

„Þetta eru risastórar fréttir“

„Þetta eru risastórar fréttir,“ segir Björn Berg Gunnarsson, um nýjustu vendingar í golfheiminum þar sem að fjárfestingasjóður Sádi-Arabíu er kominn saman í eina sæng með stærstu mótaröðum íþróttarinnar.

Íþróttaþvottavél Sáda á fullum snúningi

Sprengju var varpað inn í golfheiminn í vikunni þegar tilkynnt var um samstarf tveggja stærstu golfmótaraða heims við þjóðarsjóð Sádi-Arabíu sem höfðu eldað grátt silfur saman í á annað ár. Samstarfið er nýjasta útspilið í viðleitni Sáda til þess að kaupa sér áhrif og fegra ímynd sína í gegnum íþróttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×