Eins og greint var frá í gær sameinuðust PGA- og LIV-mótaraðirnar í golfi eftir stormasamt samband frá því að sú síðarnefnda var sett á laggirnar. Margir furðuðu sig á fréttunum, enda höfðu talsmenn PGA-mótaraðarinnar talað opinskátt um það að þeir kylfingar sem myndu yfirgefa PGA og færa sig yfir á LIV aldrei fá að spila á PGA-móti framar.
Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy, efsti maður heimslistans í golfi, tjáði sig um málið á blaðamannafundi í dag. Hann segir að þrátt fyrir að samruninn sé í raun góður fyrir golfíþróttina í heild þá hati hann enn LIV.
„Ég held að þegar allt kemur til alls, og ég reyni að halda sjálfum mér fyrir utan jöfnuna og horfi á stóru myndina og hvernig þetta verður eftir tíu ár, þá held ég að þetta sé gott fyrir golfíþróttina,“ sagði McIlroy. „Þetta sameinar hana og tryggir framtíðina fjárhagslega.“
"I still hate LIV, I hope it goes away"
— Sky Sports News (@SkySportsNews) June 7, 2023
Rory McIlroy says the merger between PGA Tour, DP World Tour and LIV Golf 'is not LIV'... pic.twitter.com/9y0b4FOgT5
Þá bætir McIlroy einnig við að þrátt fyrir að hann sé langt frá því að vera hrifinn af LIV-mótaröðinni sé það í raun sádiarabíski fjárfestingasjóðurinn PIF sem er að koma inn í PGA og þannig muni fjármagn mótaraðarinnar aukast.
„PIF mun halda áfram að eyða peningum í golf og nú er það allavega þannig að PGA-mótaröðin stjórnar því hvernig þeim peningum er eytt. Þetta er einn stærsti fjárfestingasjóður í heimi. Hvort viltu hafa hann með þér eða á móti þér? Þegar allt kemur til alls þá eru það peningar sem ráða og ég vill allavega frekar hafa þá með okkur í liði.“
„Ég hata enn LIV. Ég hata LIV og vona að sú mótaröð hverfi alveg. Og ég býst við því að hún geri það,“ sagði McIlroy.