Innlent

Mikill þungi færist nú í aðgerðirnar segir formaður BSRB

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Krafa félagsmanna er sömu laun fyrir sömu störf.
Krafa félagsmanna er sömu laun fyrir sömu störf. BSRB

Engin niðurstaða varð af löngum fundi í Karphúsinu í nótt á milli BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fundi lauk á öðrum tímanum í nótt og stefnir í víðtækar verkfallsaðgerðir í dag. 

Aðgerðirnar ná meðal annars til starfsfólks í leikskólum, sundlaugum, íþróttamannvirkjum, þjónustumiðstöðvum, bæjarskrifstofum, áhaldahúsum og höfnum.

Um er að ræða 29 sveitarfélög vítt og breitt um landið en Reykjavík er undanskilin þar sem þegar hefur verið samið þar. Á heimasíðu BSRB segir að um 2500 manns taki þátt í aðgerðunum sem séu umfangsmiklar og þannig raska starfsemi sveitarfélaga og lífi fólks verulega. 

Áhrifanna mun gæta á að minnsta kosti 150 starfsstöðvum um allt land. 

„Ábyrgð okkar allra er mikil og hefur BSRB lagt fram fjölmargar tillögur til að ná sátt. Þótt eitthvað hafi þokast í samningsátt á samningafundum síðustu daga neitar Samband íslenskra sveitarfélaga enn að koma til móts við réttláta kröfu okkar um sömu laun fyrir sömu störf. Það eru gríðarleg vonbrigði að við höfum ekki náð lengra og ljóst að mikill þungi færist í aðgerðir okkar frá og með morgundeginum og þar til lausn fæst í málið,” er haft eftir Sonju Þorbergsdóttur, formanni BSRB, á heimasíðu bandalagsins.

Ummælin lét hún falla eftir fundinn í nótt.

BSRB


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×