Golf

Golfkennarinn sem fór holu í höggi á PGA og upplifði drauminn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Michael Block var stjarna helgarinnar á PGA-meistaramótinu.
Michael Block var stjarna helgarinnar á PGA-meistaramótinu. getty/Kevin C. Cox

Óvænt stjarna varð til á PGA-meistaramótinu í golfi um helgina. Það var Bandaríkjamaðurinn Michael Block sem fór holu í höggi á 15. braut, rakaði inn seðlum og tryggði sér þátttökurétt á PGA-meistaramótinu á næsta ári.

Block er golfkennari en ekki atvinnumaður og hafði ekki komist í gegnum niðurskurðinn á neinu af fyrstu sex risamótunum sem hann tók þátt á. Hann þótti því ekki beint líklegur til afreka á PGA-meistaramótinu um helgina. En þessi 46 ára Bandaríkjamaður stal senunni og skyggði nánast á sjálfan sigurvegarann, Brooks Koepka.

Block komst í gegnum niðurskurðinn á PGA-meistaramótinu og á lokadegi þess í gær var hann í holli með Rory McIlroy, einni stærstu stjörnu golfsins. Hann trúði varla eigin augum þegar það var staðfest.

Á 15. braut á Oak Hill vellinum í New York gerði Block sér lítið fyrir og fór holu í höggi eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.

Block trúði ekki sínum eigin augun og þurfti að fá staðfestingu frá McIlroy á því sem hann hafði gert.

„Ég hugsaði af hverju er Rory að faðma mig? Hann myndi ekki gera það ef þetta hefði bara verið nálægt því að fara ofan í!“ sagði Block.

Þeir McIlroy féllust aftur í faðma eftir lokaholuna og Block gerði það sem allir heiðarlegir menn myndu gera og bað um bolamynd af sér með McIlroy.

Block kom sér í tóm vandræði á lokaholunni en náði að bjarga pari og tryggja sér þar með þátttökurétt á PGA-meistaramótinu á næsta ári. Block endaði í 15. sæti mótsins um helgina og lék á samtals einu höggi yfir pari. Fyrir það fékk hann tæplega þrjú hundruð þúsund Bandaríkjadala. Það er ígildi 1920 golftíma en sem fyrr sagði vinnur Block fyrir sér sem golfkennari. 

Félagar hans í golfklúbbnum hans komu saman og fylgdust með Blocks á PGA-meistaramótinu. Mikil fagnaðarlæti brutust út í golfklúbbnum hans þegar hann fór holuna í höggi og PGA birti myndband af þeim á Twitter.

„Ég hef aldrei farið holu í höggi á móti og þetta var sennilega súrrealískasta augnablik lífs míns,“ sagði Block um ásinn sem hann fékk á PGA-meistaramótinu.

„Ég er að upplifa drauminn. Ég spilaði með Justin Rose á laugardaginn og Rory McIlroy á sunnudaginn á risamóti. Það verður ekki mikið stærra en það. Ég er eins og hinn nýi John Daly nema ég er ekki með möllett og ekki jafn stór og hann.“

Block ásamt sigurvegara PGA-meistaramótsins 2023, Brooks Koepka.getty/Darren Carroll

McIlroy, sem endaði í 7. sæti á PGA-meistaramótinu, hrósaði Block í hástert. „Þegar þetta er vikan þín er þetta vikan þín. Þetta var ótrúlegt högg og viðeigandi leið til að toppa frammistöðu hans á mótinu,“ sagði Norður-Írinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×