Viðskipti innlent

Talið víst að Jens Garðar verði næsti fram­­kvæmda­­stjóri SA

Jakob Bjarnar skrifar
Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri Laxa fiskeldis og Fiskeldis Austfjarða, er sagður efstur á lista yfir arftaka Halldórs Benjamíns sem framkvæmdastjóri SA. Víst er að hans bíður erfitt viðfangsefni sem er að ná samningum við ósátta verkalýðshreyfingu.
Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri Laxa fiskeldis og Fiskeldis Austfjarða, er sagður efstur á lista yfir arftaka Halldórs Benjamíns sem framkvæmdastjóri SA. Víst er að hans bíður erfitt viðfangsefni sem er að ná samningum við ósátta verkalýðshreyfingu. Vísir/Sigurjón

Samkvæmt heimildum Vísis er talið næsta víst að Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri Fiskeldis Austfjarða hf. og Laxa fiskeldis hf. verði fyrir valinu sem næsti framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Mikið er undir.

Hringurinn er tekinn að þrengjast, um hópinn sem til greina hefur komið sem arftakar Halldórs Benjamíns Þorbergssonar sem framkvæmdastjóri. Eftir því sem Vísir kemst næst er Jens Garðar sá sem helst kemur til greina. Mikil spenna ríkir um það hver muni veljast til starfans en fyrir dyrum standa afar erfiðir kjarasamingar á markaði. Samið var til bráðabirgða um í desember á síðasta ári, til eins árs en mikil verðbólga hefur að miklu leyti eytt út ávinningi sem þeir samningar fólu í sér fyrir launamenn. Hugur er í verkalýðshreyfingunni en þegar er farið að vinna að langtímasamningi í erfiðu efnahagsástandi.

Heimildin fjallaði nýverið um málið og þar var talið einsýnt að Jens Garðar yrði fyrir valinu. Hann væri kandídat fyrirtækja í sjávarútvegi sem væru sterk innan SA. Samkvæmt heimildum Vísis var ein þeirra sem var í þeim hópi sem komst svo langt að vera boðuð í viðtal Sigríður Mogensen sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins. Hún mun ekki vera lengur inni í myndinni. Þá er það fullyrt við Vísi að rætt hafi verið við Páll Ásgeir Guðmundsson fyrrverandi aðstoðarmann Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra.

Efasemdir um að Jens Garðar sé rétti maðurinn í starfið

Einn heimildarmanna Vísis taldi það ekki góðri lukku stýra að velja til starfans mann sem teldist innmúraður og innvígður Sjálfstæðismaður. Ekki síst í ljósi þess að það stefnir í afar harðar kjaraviðræður. Sá sem tekur við starfi framkvæmdastjóra yrði að kunna að stíga ölduna, með óbilgirni og einsýni yrði öllu steypt í bál og brand. 

Téður heimildarmaður leyfði sér að efast um að Jens Garðar væri heppilegur í ljósi starfa hans í sjókvíaeldinu. Það mál er afar umdeilt og ekki þá aðeins á mölinni heldur einnig fyrir austan og má í því sambandi nefna að meirihluti Seyðfirðingar hafa hafnað áformum um eldi í firðinum og gremst ef ganga á gegn þeim vilja. En þar hefur Jens blásið til sóknar.

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins fór fram í Húsi atvinnulífsins í gær en Eyjólfur Árni Rafnsson var endurkjörinn formaður SA, í rússneskri kosningu. Ný inn í stjórn samtakanna koma Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, Páll Erland, forstjóri HS veitna, og Þorsteinn Víglundsson, forstjóri B. M. Vallár ehf. Þetta fólk kemur inn í stjórn að loknu umsóknarferli og viðtölum þannig að ekki er almennilega ljóst hvað það hefur um ráðningu nýs framkvæmdastjóra að segja.

Hringurinn þrengist hratt og örugglega

Eyjólfur Árni segir í samtali við Vísi það ekki mjög heppilegt í ljósi stríðsins í Úkraínu að tala um rússneska kosningu en sagðist vissulega ánægður með ótvíræðan stuðning. Sagði það gefa vísbendingu um að hann og stjórnin nytu trausts innan samtakanna, til allra góðra verka. 

Eyjólfur segir spurður að ekki ver'o tilkynnt um arftaka Halldórs Benjamíns í dag eins og vænst hafði verið, boðaður stjórnarfundur í dag væri hefðbundinn og kosið í embætti. 

En liggur fyrir hver tekur við sem framkvæmdastjóri?

„Við færumst nær því hratt og örugglega,“ segir Eyjólfur kíminn en hann vill ekki gefa of mikið upp, né heldur segja til um hvenær tilkynnt verður um nýjan framkvæmdastjóra. Eyjólfur segir að þá dagsetningu verði fyrst að gefa stjórn og framkvæmdastjórn áður en öðrum verður greint frá því. Þannig að ekki liggur fyrir hvenær nýr framkvæmdastjóri verður kynntur til sögunnar.

Eyjólfur Árni segir það svo spurður að mikil ánægja hafi verið með störf Halldórs Benjamíns, en svona gangi þetta fyrir sig, fólk komi og fari. „Hann hefur átt afar farsælt starf hjá SA undanfarin sjö ár. Og við óskum honum velfarnaðar á nýjum stað.“

Ekki náðist í Jens Garðar í morgun til að inna hann eftir því hvort hann væri á leiðinni í Hús atvinnulífsins í Borgartúni.


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×