Innlent

Skoða að heimila utan­lands­ferðir án þess að bætur skerðist

Helena Rós Sturludóttir skrifar
Unnur Sverrisdóttir er forstjóri Vinnumálastofnunar.
Unnur Sverrisdóttir er forstjóri Vinnumálastofnunar. Vísir/Egill

Forstjóri Vinnumálastofnunar segir allsherjar endurskoðun á lögum um atvinnuleysisbætur standa nú yfir sem búist er við að ljúki í haust. Ekki sé búið að taka ákvörðun um hvort heimilt verði að ferðast tímabundið til annarra EES-ríkja án þess að bætur skerðist

Í rökstuddu áliti ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, sem sent var til íslenskra stjórnvalda og greint var frá í gær kom fram að Ísland brjóti gegn EES-reglum með því að skerða atvinnuleysisbætur á meðan tímabundinni dvöl í öðru EES-ríki stendur. 

Utanlandsferðir skerði bætur

Hingað til hafa þeir sem þiggja atvinnuleysisbætur hér á landi þurft að dvelja á Íslandi og hafa ferðir til annarra ríka, til lengri eða skemmri tíma, skert bótarétt. Er það mat ESA að með því séu íslensk stjórnvöld að brjóta gegn ákvæðum EES-samningsins um frjálst flæði þjónustu. 

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir starfshóp á vegum félagsmálaráðuneytisins nú vinna að heildarendurskoðun á lögum um atvinnuleysistryggingar sem gert er ráð fyrir að klárist í haust. Þar sé þetta mál meðal annars til skoðunar en hvort reglunum verði breytt er ekki komið á hreint.

Lögin til endurskoðunar 

„Þetta er mál er á borði félagsmálaráðuneytisins. Það eru þau sem eiga öll samskipti við Eftirlitsstofnun EFTA en auðvitað kemur þetta líka á okkar borð,“ segir Unnur. Aðspurð hvort hún eigi von á að lögunum verði breytt í kjölfar mats Eftirlitsstofnunar segist Unnur ekki vita það. 

„Það er held ég ekki búið að taka ákvörðun um það. Það er verið að skoða þetta frá öllum hliðum. Verið að skoða hvort það séu fordæmi hjá EFTA dómsólum sem hægt er að byggja á og svo framvegis. Það er verið að skoða þetta mjög nákvæmlega veit ég í þessum starfshópi sem er með lögin til endurskoðunar,“ segir hún. 

Virk atvinnuleit skilyrði

Unnur segir alveg skýr ákvæði um það í lögum um atvinnuleysistryggingar að fólk eigi að vera í virkri atvinnuleit á meðan og eigi að taka starfi ef það býðst. „Síðan eru líka lagareglur sem lúta að því að þú getur óskað eftir heimild til að fara til annarra landa innan Evrópska efnahagssvæðisins í atvinnuleit. Þá færðu sérstakt vottorð þess efnis í þrjá mánuði til dæmis. Þá getur þú farið á EES-svæðið og farið að leita þér að vinnu en það eru sérreglur um það,“ segir hún. Ekki sé heimilt að fara í frí til útlanda á bótum samkvæmt gildandi lögum án þess að þær skerðist. 

Samkvæmt tilkynningu frá EFTA kemur fram að röksstutt álit sé annað skrefið í formlegu samningsbrotaferli. Íslensk stjórnvöld hafi tvo mánuði til að koma sínum sjónvarmiðum á framfæri við ESA Eftirlitsstofnun. Stofnunin meti svo í kjölfarið hvort málinu verði vísað til EFTA dómstólsins.


Tengdar fréttir

Breyting á reglum Vinnumálastofnun fyrir menntaskólafólk

Fyrir um ári síðan var ég einn af þeim sem voru atvinnulausir. Fyrir ári síðan var staðan hjá mér svo slæm að ég þurfti að lifa á orlofinu sem ég fékk í maí sen dugði mér ekki einu sinni út júní.

Þurfa ekki að skrá sig atvinnulausa á Íslandi mánaðarlega

Forstjóri Vinnumálastofnunar segir útlendinga á atvinnuleysisbótum eiga rétt á því að leita að vinnu annars staðar á evrópska efnahagssvæðinu í þrjá mánuði. Kári Stefánsson vill fjölga dögum milli fyrstu og annarrar sýnatöku ferðamanna sem koma til landsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×