Óhefðbundin Garðveisla lokar sumarfríþema Múmínálfanna
Garðveisla er sjötta og síðasta viðbótin í sumarlínuna sem sýnir Múmínálfana við hinar ýmsu sumarfrísathafnir. Stíllinn er í takt við síðustu fimm sumarlínur en myndskreytingarnar í sumarlínu Moomin Arabia hverfast um kunnuglegt þema: Athafnir Múmínálfanna í sumarfríinu. Í þetta sinn fagna Múmínálfarnir sumrinu í sameiningu með nýjum vinum, tígrisdýrum, sem sluppu úr dýragarðinum.

Einkennilegir atburðir verða kveikjan að óvæntum vinskap
Meginmyndefni Garðveislu línunnar kemur úr myndasögunni „Moominvalley Turns Jungle“, sem kom út í Englandi árið 1956. Í sögunni finnur Mía litla framandi fræ sem Múmínálfarnir dreifa hér og þar svo Múmíndalur breytist í frumskóg allskyns ávaxtatrjáa á einni nóttu. Pjakkur er í spennuleit og sleppir villtum dýrum úr dýragarði í nágrenninu svo það lítur út fyrir að Múmínálfarnir verði étnir af tígrisdýrum. En þegar Múmínálfarnir bjarga köttunum frá því að verða hnepptir aftur í varðhald, myndast vinskapur á milli þeirra. Þessum óvæntu atburðum er svo fagnað í dásamlegri sumarveislu í Múmíngarðinum.
Eins og við var að búast er sumarveisla Múmínfjölskyldunnar ekki alveg hefðbundin veisla.
„Myndskreytingarnar sýna ekki einungis sumarstemninguna heldur einnig kímnigáfu Tove Jansson og magnað ímyndunarafl hennar. Glundroði Múmínfjölskyldunnar skín enn og aftur í gegn þar sem þau vingast við villt dýrin og aðstoða þau við að fela sig frá dýragarðsvörðum," segir myndskreytirinn Tove Slotte.

Nýtt nafnmerki Moomin by Arabia – Styrkir samstarfið við Múmínálfana
Múmínvörurnar frá Arabia eiga langa sögu með leyfishafa Múmínálfanna eða síðan á sjötta áratug síðustu aldar.
Samstarfið hefur leitt saman framúrskarandi þekkingu á hefðbundinni keramikgerð og sígildar, dáðar persónur úr bókmenntaarfi Múmínálfanna. Fyrstu Múmín krúsirnar snemma á 10 áratugnum höfðu einungis Arabia stimpil á botninum, en strax árið 1991 bættist við mynd af Múmínálfi og Moomin höfundarréttarmerki.
Í upphafi var megin tilgangur nafnmerkisins að koma til skila uppruna vörunnar með því að sameina „Arabia Finland“ merkið og myndmerki Múmínálfanna. Frá Apríl 2023 verður nafnmerki Moomin by Arabia uppfært, orðinu „Finland“ verður bætt við á ný en orðið „by“ verður fjarlægt. Með þessari breytingu samstillum við og styrkjum enn frekar tenginguna við Norræna hönnun, rótgróna arfleið Arabia vörumerkisins og sannlega finnskan uppruna Múmínálfanna.

Arabia vörumerkið fagnar virðulegu 150 ára afmæli á árinu, og á að baki langa sögu fjölda nafnmerkja og auðkenna, en núverandi merki er 28. útgáfan. Núverandi nafnmerki Moomin Arabia „by Arabia“ hefur verið í notkun frá árinu 2014. Nýtt opinbert nafnmerki Moomin Arabia leiðir saman tvö ástkær finnsk fyrirbæri, Múmínálfana og Arabia. Stimplarnir á botnum krúsanna verða uppfærðir jafnóðum og þær eru framleiddar næstu tvö árin. Áætlað er að árið 2025 í síðasta lagi verði vinnu við uppfærslu á efni og vörum merkisins lokið. Breyting nafnmerkisins mun ekki hafa áhrif á vörurnar á nokkurn hátt; Moomin Arabia vörurnar og fallegar myndskreytingar þeirra verða áfram í hæsta gæðaflokki og vel sýnileg í framtíðinni þar að auki.
Sumarlínan 2023 er fáanleg í takmarkaðan tíma frá 9. maí til 31. september 2023, eða á meðan birgðir endast.