Milan og Roma töpuðu dýrmætum stigum en Inter vann stórt Smári Jökull Jónsson skrifar 3. maí 2023 21:30 Lautaro Martinez skoraði tvö mörk fyrir Inter í kvöld. Vísir/Getty AC Milan tapaði dýrmætum stigum í baráttu um sæti í Meistaradeildinni þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Cremonese í kvöld. Inter vann 6-0 stórsigur á Verona og er í fjórða sætinu.
Það er hart barist um sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta ári í Serie A. Juventus, Lazio, Inter, Atalanta, AC Milan og Roma berjast um þrjú sæti í deild þeirra bestu að ári. AC Milan tapaði dýrmætum stigum í þeirri baráttu í kvöld. Liðið náði aðeins 1-1 jafntefli gegn Cremonese á heimavelli eftir að hafa jafnað í uppbótar tíma. Á meðan unnu nágrannar þeirra í Inter 6-0 stórsigur á útivelli gegn Verona þar sem Lautaro Martinez og Edin Dzeko skoruðu tvö mörk hvor auk þess sem Hakan Calhanoglu bætti við marki og heimamenn skoruðu auk þess sjálfsmark. Roma varð einnig á í messunni þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Monza á útivelli. Stephan El Shaarawy kom Roma yfir en Luca Caldirola jafnaði metin fyrir hlé. Lokatölur 1-1 og dýrmæt stig í súginn hjá lærisveinum Jose Mourinho. Hitt Rómarliðið, Lazio, vann hins vegar 2-0 sigur á Sassuolo á heimavelli sínum í kvöld. Felipe Anderson og Toma Basic skoruðu mörkin og tryggðu heimaliðinu stigin þrjú. Eftir leiki dagsins er Lazio í öðru sæti deildarinnar með 64 stig en Juventus stigi á eftir í þriðja sæti. Inter er í fjórða sætinu, því síðasta sem gefur sæti í Meistaradeild, með 60 stig en Atalanta, Roma og Milan öll með 58 stig þar á eftir.
Ítalski boltinn Mest lesið Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Segir Barcola ekki í vandræðum Enski boltinn Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingur - ÍA | Íslandsmeistararnir fá Skagamenn í heimsókn Breiðablik - Keflavík | Bikarmeistararnir fá erfiðan heimaleik Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Ísak skoraði glæsimark í sigri Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Jón Dagur og félagar enn með fullt hús Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna Messi og Suárez í stuði Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Aflýstu leik vegna skutlukasts „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ „Þetta var alltaf mitt mark“ „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Kristian Nökkvi og félagar nokkrum stigum frá toppnum Sigurganga Börsunga heldur áfram Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Fiskaði rautt spjald í sigri Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Sjá meira