Innlent

Stefnir ó­­­breytt í verk­­­fall hjá þúsund starfs­­­mönnum

Bjarki Sigurðsson skrifar

Kjarasamningsviðræður BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga (SNS) eru í algjörum hnút og fundur samninganefnda þeirra í dag bar engan árangur. Formaður BSRB segir lítinn samningsvilja hafa verið til staðar hjá sambandinu. SNS segir engin mál leyst með fyrirsögnum í fjölmiðlum. 

Kjaraviðræðufundur samninganefnda BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga fór fram í húsnæði ríkissáttasemjara í dag. Fundurinn var klukkutíma langur en honum lauk án nokkurrar niðurstöðu og var ekki boðað til nýs fundar að honum loknum. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu sáttasemjara var það ekki gert þar sem engin ástæða hafi verið fyrir því. Deiluaðilar séu ekki nálægt kröfum hvors annars.

Á leið til fundar í morgun sagði formaður BSRB að meginkrafa bandalagsins væri sú að starfsmenn sem vinni sömu störf á sama vinnustað fái allir sömu kjör þrátt fyrir mismunandi stéttarfélög. Dæmi séu um annað sem enginn megi sætta sig við.

SNS hefur haldið því fram að BSRB hafi hafnað samningi sem hefði tryggt félagsmönnum sömu kjör og starfsmenn hjá öðrum stéttarfélögum þegar samningar voru gerðir árið 2020.

„BSRB bauðst sami samningur og SGS undirritaði 2020 en hafnaði honum afdráttarlaust þrátt fyrir ítrekuð tilmæli SNS til BSRB um að samþykkja slíkan samning enda myndu félagsmenn þeirra að öðrum kosti verða af launahækkunum í ársbyrjun 2023. SNS hefur undir höndum skrifleg samskipti við forystu BSRB um þetta mál og þykir miður að öðru sé haldið fram í fjölmiðlum,“ segir í tilkynningu sem birtist á vef SNS í dag.

Enginn frá SNS gat veitt fréttastofu viðtal í dag en í tilkynningunni segir að það hafni ákveðnum fullyrðingum BSRB um að sveitarfélög séu að brjóta jafnréttislög. 

„Ef BSRB telur svo vera hvetur sambandið þau til að fara með málið fyrir dómstóla þar sem það verður ekki leyst með fyrirsögnum í fjölmiðlum,“ segir í tilkynningunni.

Fréttastofa náði aftur tali af Sonju eftir fundinn í dag og sagðist hún hafa fundið fyrir því að enginn samningsvilji væri til staðar hjá SNS. Afgerandi niðurstaða í atkvæðagreiðslu meðlima BSRB um verkfallsaðgerðir hafi því ekki breytt miklu hvað varðar kjarasamningsgerðina.

Því stefnir allt í það að rúmlega 970 starfsmenn leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila muni hefja verkfallsaðgerðir þann 15. maí næst komandi. Flestir þeirra starfa í Kópavogi, eða 524 talsins, en 170 þeirra starfa í Garðabæ, 251 í Mosfellsbæ og 32 á Seltjarnarnesi.


Tengdar fréttir

Gefa hvorugt eftir í deilunni og verkföll yfirvofandi

Hátt í þúsund félagsmenn BSRB í fjórum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu munu að óbreyttu leggja niður störf í næsta mánuði, í kjölfar deilna stéttarfélagsins við Samband íslenskra sveitarfélaga. Lögmaður hjá sambandinu segir stéttarfélagið þurfa að bera ábyrgð á því að hafa hafnað samningi sem bauðst á sínum tíma en formaður BSRB segir að leiðrétta þurfi misréttið. 

Gefa hvorugt eftir í deilunni og verkföll yfirvofandi

Hátt í þúsund félagsmenn BSRB í fjórum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu munu að óbreyttu leggja niður störf í næsta mánuði, í kjölfar deilna stéttarfélagsins við Samband íslenskra sveitarfélaga. Lögmaður hjá sambandinu segir stéttarfélagið þurfa að bera ábyrgð á því að hafa hafnað samningi sem bauðst á sínum tíma en formaður BSRB segir að leiðrétta þurfi misréttið. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×